Fréttir

Fjöltengi.is er kominn í loftið!

15.11.2001

Orkuveita Reykjavíkur hefur sett nýjan þjónustuvef Fjöltengi.is í loftið.

Fjöltengi.is er kynningarvefur fyrir nýja þjónustu Orkuveitu Reykjavíkur.  Reykvíkingum gefst þar kostur á að tengjast internetinu um rafmagnsinnstungur.

Vefurinn var hannaður af Atómstöðinni og er keyrður áfram af vefumsjónarkerfinu eplica.  Fjöltengi.is er fyrsti vefurinn sem nýtir sér vefumsjónarkerfið sem verður fullbúið í janúar 2002.

Nýtt vefsvæði Orkuveitunnar (www.or.is) verður fært í sama kerfi áður en langt um líður.

Um Orkuveitu Reykjavíkur

Orkuveita Reykjavíkur er sjálfstætt þjónustufyrirtæki í eigu Reykjavíkurborgar, Garðabæjar, Hafnarfjarðarbæjar, Akranesbæjar, Borgarbyggðar og Borgarfjarðarsveitar. Orkuveitan dreifir rafmagni, heitu vatni til húshitunar, köldu vatni til neyslu og brunavarna á þjónustu svæði sínu. Á þjónustusvæði fyrirtækisins býr meira en helmingur íslensku þjóðarinnar. Fyrirtækið kappkostar að veita viðskiptavinum sínum bestu mögulega þjónustu.  Orkuveitan annast dreifingu á raforku til notenda í Reykjavík, Kópavogi, Garðabæ, Seltjarnarnesi, Mosfellsbæ og Akranesi

Um Atómstöðina

Atómstöðin er fyrirtæki sem sérhæfir sig í viðmótshönnun og vefrænum lausnum í kynningarmálum og viðskiptum fyrirtækja og stofnana. Atómstöðin hefur yfir að ráða starfsfólki sem hefur góða yfirsýn yfir tæknilega hlið málanna jafnhliða skapandi framsetningu. Við úrlausn viðfangsefna er sérstök áhersla lögð á notagildi, ímynd og markaðssetningu.

Um eplica

Eplica ehf. var stofnsett árið 2002 með það fyrir augum að markaðssetja vefumsýslukerfið eplica.
eplica er sérlega öflugt vefumsjónarkerfi sem leysir af hólmi aðrar veflausnir á markaðnum.  Mikið hefur verið lagt upp úr einfaldleika í notkun, öryggi, góðri aðgangsstýringu og getu kerfisins.
Við hönnun vefumsjónarkerfisins eplica var byggt á umfangsmikilli reynslu af gerð vefsvæða og ríkum skilningi á hlutverkum og þörfum þeirra sem koma að skipulagningu, gerð, viðhaldi og rekstri þeirra.
Niðurstaðan eru tæknilegir yfirburðir sem felast í réttri hönnun, mikilli afkastagetu og miklum sveigjanleika.

Nánari upplýsingar er hægt að nálgast á info@eplica.is








litli
Þetta vefsvæði byggir á Eplica