Beint í leiðarkerfi vefsins.
Latibær hefur upp á síðkastið safnað verðlaunum, síðast hinum virtu BAFTA-verðlaunum. Og nú hefur verið opnaður nýr vefur sem er fyrst og fremst upplýsingavefur um fyrirtækið og starfsemi þess.
Lesa meiraÍ dag opnaði Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra vefþjónustuna Stillingar.is við formlega athöfn. Um er að ræða nýja þjónustu sem er hönnuð og rekin af Hugsmiðjunni ætlaða vefstjórum sem vilja koma til móts við vefnotendur sem eiga erfitt um lestur.
Lesa meiraNú hefur Microsoft gefið út nýja útgáfu af Internet Explorer netvafranum (útgáfu 7). Búist er við að Microsoft byrji að dreifa henni sjálfkrafa til notenda Windows XP stýrikerfisins frá og með 1. nóvember. Því má gera ráð fyrir að innan skamms muni stór hluti vefnotenda nota þessa nýju útgáfu.
Lesa meiraÞann 1. október opnaði Hugsmiðjan nýjan vef fyrir FL Group í Eplica kerfinu.
Lesa meiraBjörn Bjarnason dómsmálaráðherra var viðstaddur opnun nýrrar heimasíðu Útlendingastofnunar, en Björn er einmitt þekktur fyrir áhuga sinn á því að nýta Netið til hins ýtrasta og er frumkvöðull meðal íslenskra stjórnmálamanna í því að halda úti heimasíðu - en Hugsmiðjan gerði einmitt síðuna sem hann er nú með. Vefur Björns fékk íslensku vefverðlauni 2003 sem besti einstaklingsvefurinn.
Lesa meiraSkýrr opnaði nýlega nýjan vef í Eplica-kerfi Hugsmiðjunnar. Skýrr og Hugsmiðjan hafa lengi átt gott samstarf á ýmsum sviðum og skemmtilegt tákn um það er þessi nýi og glæsilegi vefur.
Lesa meiraNýlega opnaði Hugsmiðjan nýja útgáfu af upplýsingavefnum Meistarinn.is. Vefurinn veitir almenningi, fyrirtækjum og stofnunum upplýsingar um fyrirtæki, meistara og fagmenn innan Samtaka iðnaðarins á einfaldan og aðgengilegan hátt. Vefurinn byggir á Eplica-vefumsjónarkerfinu.
Lesa meiraÚrval-Útsýn er með vef sinn í Eplica-kerfi Hugsmiðjunnar. Á dögunum var vefurinn endurhannaður af Hugsmiðjunni. Útkoman er án efa glæsilegasti ferðavefur landsins.
Lesa meiraForsætisráðherra lagði fram í ríkisstjórn, þann 13. janúar sl., skýrslu um aðgengi allra að vefnum. Skýrsluhöfundar eru Arnar Pálsson, félagsmálaráðuneyti, og Sigurður Davíðsson, forsætisráðuneyti. Í skýrslunni eru lagðar fram tillögur um aðgerðir sem stuðla að því að fatlaðir og aðrir hópar sem gefa þarf sérstakan gaum í upplýsingasamfélaginu geti nýtt sér þjónustu á Netinu.
Lesa meiraÁ dögunum fór í loftið ný útgáfa af vef Strætó bs, www.bus.is. Vefurinn hefur lengi keyrt í Eplica-kerfinu og engin breyting varð á því. Hins vegar fór fram mikil endurnýjun á vefnum.
Lesa meiraÍ dag var undirritaður samningur milli Hugsmiðjunnar og Persónuverndar um nýtt vefkerfi fyrir stofnunina. Hugsmiðjan mun hanna nýjan vef og setja hann upp í vefumsjónarkerfi sínu, Eplica.
Lesa meira
Ábending, hrós eða kvörtun? Láttu okkur vita, hvað þér finnst.
Athugið: ekki er nauðsynlegt að gefa upp nafn, síma né netfang.