Fréttir

10.12.2007 : Nokkrir nýlegir vefir: Þjóðminjasafn, Tanni og Flug

Meðal verkefna okkar undanfarnar vikur má nefna ný vefsvæði fyrir Þjóðminjasafn Íslands, Tanna auglýsingavörur og Flugvirkjafélag Íslands. Lesa meira
 

26.10.2007 : TM.is aðgengilegasti þjónustuvefur Íslands

Tryggingamiðstöðin er fyrst íslenskra aðila til að fá aðgengisvottun frá Sjá ehf. og Öryrkjabandalagi Íslands um forgang III fyrir vefinn www.tm.is. Meðal nýjunga á vefnum eru myndskeið á táknmáli, textuð myndskeið, hljóðskrár og fleira. Lesa meira
 

19.10.2007 : Gómsætur vefur Nóatúns

Nýr og efnismikill vefur Nóatúns er án efa girnilegasti vefur sem Hugsmiðjan hefur sett upp. Myndir af hvers kyns kræsingum blasa við hvert sem litið er og spennandi uppskriftir bíða þess að vera prófaðar. Lesa meira
 

9.10.2007 : Vefur Icelandair vinnur til fleiri verðlauna

Vefur Icelandair.com hlaut nýverið 'Outstanding Achievement Award' á Interactive Media Awards í flokki flugfélaga 2007. Sérstaklega þótti vefurinn vel heppnaður með tilliti til innihalds, notendaviðmóts og hönnunar. Lesa meira
 

5.10.2007 : Nýjasta útlit og vísindi

Vísindavefur Háskóla Íslands hefur fyrir löngu skipað sér fastan sess sem uppspretta fróðleiks um allt og ekkert. Þar veitist almenningi innsýn í það hugvit sem býr innan veggja Háskólans og eftir rúmlega sjö ára feril inniheldur svarabankinn hátt í 7000 svör við spurningum gesta. Lesa meira
 

3.10.2007 : Hugsmiðjan þjónustar fjármálafyrirtæki

Nýtt vefsvæði Aurora Holding sem unnið er í Eplica vefumsjónarkerfinu hefur nú verið opnað. Hugsmiðjan sá um útlitshönnun vefsvæðisins, viðmótsforritun og uppsetningu. Lesa meira
 

31.5.2007 : Gott veður á nýjum vef

Í dag opnaði umhverfisráðherra, Þórunn Sveinbjarnardóttir, nýjan og glæsilegan vef Veðurstofunnar. Vefurinn er settur upp í Eplica vefumsjónarkerfi frá Hugsmiðjunni sem sá um útlitshönnun og vefun. Lesa meira
 

29.5.2007 : Nýjar viðbætur í Eplica

Tvær nýjar viðbætur hafa litið dagsins ljós í Eplica kerfinu, RSS þjónusta og vörn gegn ruslsendingum (spammi). RSS þjónusta gefur notendum kleift að gerast áskrifendur að efni vefsíða og ruslvörnin kemur í veg fyrir að óvelkomið efni rati inn á síður í gegnum vefform. Þessar viðbæturnar hafa verið unnar í tengslum við væntanlega uppfærslu Eplica kerfisins en eru samhæfðar þeim Eplica útgáfum sem nú þegar eru í notkun. Hér að neðan er fjallað um þessar einingar og kostnað við að taka þær í notkun.

Lesa meira
 

4.5.2007 : Eplica vefsvæðum fjölgar og fjölgar

Við höfum ekki gefið okkur tíma til að segja frá öllum vefsvæðunum sem við höfum verið að opna upp á síðkastið, en til að gefa örlitla innsýn í hvað við höfum haft fyrir stafni er hér listi yfir nokkur Eplica vefsvæði sem hafa verið opnuð nýlega en ekki verið skrifaðar sérstakar fréttir um. Lesa meira
 

30.4.2007 : Ráðherra opnar glæsilegan vef Lyfjastofnunar

Í dag opnaði heilbrigðisráðherra nýjan og glæsilegan vef Lyfjastofnunar. Á vefnum er að finna mikið magn upplýsinga um þennan mikilvæga þátt heilbrigðiskerfisins, meðal annars ítarlegar upplýsingar um öll þau lyf sem í boði eru á íslenskum markaði, fróðleik um vítamín og steinefni og margs konar tölfræðilegar upplýsingar.

Lesa meira
 

16.4.2007 : N1 á stjarnfræðilegum hraða

Síðastliðinn föstudag var nýtt fyrirtæki, N1 hf., afhjúpað og um leið opnaður nýr vefur sem unninn var af Hugsmiðjunni í Eplica umhverfinu. Þetta verkefni hefur verið unnið mjög hratt, en þrátt fyrir flýtinn hefur verið vandað til verka og afraksturinn er vefur sem bæði Hugsmiðjan og N1 eru stolt af. Lesa meira
 

14.3.2007 : Ársskýrsla Icelandair á sjálfstæðum Eplica vef

Icelandair Group fór þá óhefðbundu leið að útbúa sjálfstætt vefsvæði til að birta ársskýrslu sína fyrir árið 2006 (link). Afraksturinn er ársskýrsla sem er einstök meðal íslenskra fyrirtækja. Lesa meira
 

9.3.2007 : Skilriki.is - vefur um rafræn auðkenni

Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra og Ingólfur Helgason, forstjóri Kaupþings á Íslandi, tóku í gær í notkun fyrsta rafræna skilríkið hér á landi en rafræn skilríki munu nýtast bæði í viðskiptum og í samskiptum við hið opinbera og ekki síður til að bæta öryggi samskipta á netinu. Lesa meira
 

8.3.2007 : Forsætisráðherra opnar rafrænu þjónustuveituna Ísland.is

Forsætisráðherra, Geir H. Haarde opnaði í gær þjónustuveituna Ísland.is (www.island.is). Hér er um að ræða samstarfsverkefni ríkisstofnana, ráðuneyta og sveitarfélaga og er eitt mikilvægasta verkefnið í stefnu ríkisstjórnarinnar um upplýsingasamfélagið fyrir árin 2004 – 2007, Auðlindir í allra þágu. Forsætisráðuneyti fer fyrir verkefninu. Hugsmiðjan hannaði vefinn og setti hann upp í Eplica-kerfinu. Lesa meira
 

16.1.2007 : Bréf til viðskipavina

Ágæti viðskiptavinur.

Þær breytingar hafa orðið á eignarhaldi Hugsmiðjunnar ehf. að Þórarinn Friðjónsson, framkvæmdastjóri Hugsmiðjunnar, hefur keypt þriðjungshlut í fyrirtækinu af stofnanda þess, Stefáni Baxter. Jafnframt keypti Industria ehf. 20% hlut í fyrirtækinu af Stefáni. Aðrir hluthafar eru Tryggingamiðstöðin hf. og nokkrir lykilstarfsmenn Hugsmiðjunnar. Lesa meira

 

15.1.2007 : Sýnileiki í leitarvélum

Það felst í orðanna hljóman að aðgengileg vefsíða er auðlesin og auðskiljanleg og auðvelt er að komast á hana og frá henni á aðrar vefsíður.

Það gildir því almennt sú þumalputtaregla að ef vefsvæði standast viðteknar kröfur um aðgengi allra notenda, þá eykst jafnframt sýnileiki viðkomandi vefsvæðis í flestum venjulegum leitarvélum á borð við Google.

Lesa meira
 







litli
Þetta vefsvæði byggir á Eplica