Sjáum RAUTT
Vefur Rautt, sem er fyrirframgreidd GSM þjónusta Íslandssíma, er nýkominn í loftið. Boðið er upp á ýmsar þjónustur á vefnum og er hann hinn líflegasti að sjá.
Það voru starfsmenn Íslandssíma sem hönnuðu vefinn og settu hann upp í eplica vefumsjónarkerfinu.
Um Íslandssíma hf.
Íslandssími er alhliða fjarskiptafyrirtæki sem keppir að því að vera í forystu um að bjóða traustar og hagkvæmar heildarlausnir í fjarskiptum. Íslandssími þjónar jafnt fyrirtækjum sem heimilum með almennri símaþjónustu, farsímaþjónustu, internetþjónustu og gagna-flutningsþjónustu. Íslandssími hámarkar styrk sinn með samstarfi við leiðandi fyrirtæki og sjálfvirkni í þjónustu.
Íslandssími skilgreinir sig sem næstu kynslóðar fjarskiptafyrirtæki sem er laust við fjár-festingabyrðar vegna úrelts búnaðar og skipulags. Áhersla félagsins er á lausnir og þjónustu sem gera fjarskipti skilvirkari og traustari.
Um eplica:
Eplica ehf. var stofnsett árið 2002 með það fyrir augum að markaðssetja vefumsýslukerfið eplica.
eplica er sérlega öflugt vefumsjónarkerfi sem leysir af hólmi aðrar veflausnir á markaðnum. Mikið hefur verið lagt upp úr einfaldleika í notkun, öryggi, góðri aðgangsstýringu og getu kerfisins.
Við hönnun vefumsjónarkerfisins eplica var byggt á umfangsmikilli reynslu af gerð vefsvæða og ríkum skilningi á hlutverkum og þörfum þeirra sem koma að skipulagningu, gerð, viðhaldi og rekstri þeirra.
Niðurstaðan eru tæknilegir yfirburðir sem felast í réttri hönnun, mikilli afkastagetu og miklum sveigjanleika.
Nánari upplýsingar er hægt að nálgast á info@eplica.is

