Eplica til stuðnings listinni
Listaháskóli Íslands opnar nýjan vef í byrjun skólaársins
Eftir umtalsverða skoðun á þeim vefumsjónarkerfum sem í boði eru á íslenska markaðnum ákvað Listaháskóli Íslands að velja eplica.
Markmið vefsins er að kynna starfsemi hans fyrir væntanlegum nemendum og atvinnulífinu auk þess að þjónusta þá nemendur sem þegar eru skráðir í skólann.
Hönnun vefsins var í höndum Dagnýjar Reykjalín nemanda og Guðmundar Odds Magnússonar prófessors við skólann.
Uppsetning vefsins var í höndum Eplica ehf.
Um Listaháskóla Íslands
Nám við Listaháskóla Íslands er skipulagt sem þriggja til fjögurra ára 90 til 120 eininga nám og að loknum tilskildum prófum, lokaritgerð og lokaverkefni hlýtur nemandi B.A. eða B.F.A. gráðu. Jafnframt fer fram kennsla í kennslufræði til kennsluréttinda, 30 eininga nám í samstarfi við Kennaraháskóla Íslands.
Skólinn er á sínu fjórða starfsári og hefur vaxið og dafnað með hverju árinu. ´
LHÍ starfar undir einkunnarorðunum "Sköpun og miðlun" og má segja að nýtt vefsvæði hans styðji fullkomlega við þau.
Um eplica:
Eplica ehf. var stofnsett árið 2002 með það fyrir augum að markaðssetja vefumsýslukerfið eplica.
eplica er sérlega öflugt vefumsjónarkerfi sem leysir af hólmi aðrar veflausnir á markaðnum. Mikið hefur verið lagt upp úr einfaldleika í notkun, öryggi, góðri aðgangsstýringu og getu kerfisins.
Við hönnun vefumsjónarkerfisins eplica var byggt á umfangsmikilli reynslu af gerð vefsvæða og ríkum skilningi á hlutverkum og þörfum þeirra sem koma að skipulagningu, gerð, viðhaldi og rekstri þeirra.
Niðurstaðan eru tæknilegir yfirburðir sem felast í réttri hönnun, mikilli afkastagetu og miklum sveigjanleika.
Nánari upplýsingar er hægt að nálgast á info@eplica.is
