Fréttir

Læknablaðið fært á internetið

3.4.2002

Læknablaðið hefur ákveðið að færa út kvíarnar og birtist nú einnig á vefnum.

Lesendum Læknablaðsins gefst nú kostur á að nálgast það á vefnum.  Í blaðinu eru bæði fræðigreinar sem og umræður og fréttir.

Margmiðlunarstofan Gagarin hannaði útlit vefsins og starfsmenn Eplica ehf. sáu um uppsetningu vefsins í vefumsjónarkerfinu eplica

Um Læknablaðið
Læknablaðið ef gefið út af Læknafélagi Íslands og Læknafélagi Reykjavíkur með það fyrir augum að miðla fagupplýsingum til læknastéttarinnar.

Um Gagarin
Margmiðlunarstofan Gagarin hefur náð nokkurri sérhæfingu í hönnun fyrir skjástanda. Auk þess hefur fyrirtækið unnið ötullega að veflausnum með góðum árangri.  Áhugaverðar lausnir frá Gagarin eru meðal annars sjálfsafgreiðslustandar sem unnir voru fyrir filmuframköllun hjá Hans Pedersen og Borgarvefsjá.

Um eplica:
Eplica ehf. var stofnsett árið 2002 með það fyrir augum að markaðssetja vefumsýslukerfið eplica.
eplica er sérlega öflugt vefumsjónarkerfi sem leysir af hólmi aðrar veflausnir á markaðnum.  Mikið hefur verið lagt upp úr einfaldleika í notkun, öryggi, góðri aðgangsstýringu og getu kerfisins.
Við hönnun vefumsjónarkerfisins eplica var byggt á umfangsmikilli reynslu af gerð vefsvæða og ríkum skilningi á hlutverkum og þörfum þeirra sem koma að skipulagningu, gerð, viðhaldi og rekstri þeirra.
Niðurstaðan eru tæknilegir yfirburðir sem felast í réttri hönnun, mikilli afkastagetu og miklum sveigjanleika.

Nánari upplýsingar er hægt að nálgast á info@eplica.is








litli

Þitt álit

skiptir okkur máli

Ábending, hrós eða kvörtun? Láttu okkur vita, hvað þér finnst.
Athugið: ekki er nauðsynlegt að gefa upp nafn, síma né netfang.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica