Orkuveita Reykjavíkur opnar nýjan vef
Á vefnum mun Orkuveitan bjóða ýmsa þjónustu eins og til dæmis greiðslu orkureikninga, skráningu flutningstilkynninga og fleira. Auk þess standa notendum til boða greinargóðar upplýsingar um þau svæði sem þar sem Orkuveitan á hagsmuna að gæta. Bæði er þar um að ræða umhverfisupplýsingar og fjölda fallegra ljósmynda.
Um hönnun vefsins sá Atómstöðin, en starfsmenn Eplica ehf. sáu um uppsetningu vefsins í vefumsjónarkerfið eplica.
Gert er ráð fyrir að innra net OR muni einnigverða sett upp í eplica.
Um Orkuveitu Reykjavíkur
Orkuveita Reykjavíkur er sjálfstætt þjónustufyrirtæki í eigu Reykjavíkurborgar, Garðabæjar, Hafnarfjarðarbæjar, Akranesbæjar, Borgarbyggðar og Borgarfjarðarsveitar. Orkuveitan dreifir rafmagni, heitu vatni til húshitunar, köldu vatni til neyslu og brunavarna á þjónustu svæði sínu. Á þjónustusvæði fyrirtækisins býr meira en helmingur íslensku þjóðarinnar. Fyrirtækið kappkostar að veita viðskiptavinum sínum bestu mögulega þjónustu. Orkuveitan annast dreifingu á raforku til notenda í Reykjavík, Kópavogi, Garðabæ, Seltjarnarnesi, Mosfellsbæ og Akranesi.
Um Atómstöðina
Atómstöðin er fyrirtæki sem sérhæfir sig í viðmótshönnun og vefrænum lausnum í kynningarmálum og viðskiptum fyrirtækja og stofnana. Atómstöðin hefur yfir að ráða starfsfólki sem hefur góða yfirsýn yfir tæknilega hlið málanna jafnhliða skapandi framsetningu. Við úrlausn viðfangsefna er sérstök áhersla lögð á notagildi, ímynd og markaðssetningu.
Um eplica
Eplica ehf. var stofnsett árið 2002 með það fyrir augum að markaðssetja vefumsýslukerfið eplica.
eplica er sérlega öflugt vefumsjónarkerfi sem leysir af hólmi aðrar veflausnir á markaðnum. Mikið hefur verið lagt upp úr einfaldleika í notkun, öryggi, góðri aðgangsstýringu og getu kerfisins.
Við hönnun vefumsjónarkerfisins eplica var byggt á umfangsmikilli reynslu af gerð vefsvæða og ríkum skilningi á hlutverkum og þörfum þeirra sem koma að skipulagningu, gerð, viðhaldi og rekstri þeirra.
Niðurstaðan eru tæknilegir yfirburðir sem felast í réttri hönnun, mikilli afkastagetu og miklum sveigjanleika.
Nánari upplýsingar er hægt að nálgast á info@eplica.is

