Fréttir

SoftVelocity ákveður að kaupa eplica

9.8.2002

Bandaríska fyrirtækið SoftVelocity hefur ákveðið að ganga til samning um kaup á eplica vefumsjónarkerfinu fyrir vefsvæði sitt.

SoftVelocity sem þróar meðal annars Clarion þróunarumhverfið hefur ákveðið að endurnýja vefsvæði sitt og til að einfalda rekstur þess að og efnismiðlun kusu þeir eplica vefumsjónarkerfið.

Softvelocity kaupir enska útgáfu kerfisins eplica EE og getur þannig haldið áfram þróun á viðbótarlausnum fyrir vefsvæðið.

Hönnun vefsins verður í höndum Atómstöðvarinnar en um uppsetningu vefsins sér Eplica ehf.

Um Softvelocity

Softvelocity hannar og smíðar þróunarumhverfi fyrir fjórðu kynslóðar forritunarmálið Clarion.  Clarion hefur verið í notkun síðan 1985 og hefur náð talsverðri útbreiðslu.  Nýverið gerði fyrirtækið samning við íslenska hugbúnaðarfyrirtækið Hugsmiðjuna um þróun viðbótum við Clarion þróunarumhvefið sem munu hjálpa SoftVelocity að bjóða viðskiptavinum sínum að smíða Java forrit innan þróunarumhvefisins.

Um Atómstöðina

Atómstöðin er fyrirtæki sem sérhæfir sig í viðmótshönnun og vefrænum lausnum í kynningarmálum og viðskiptum fyrirtækja og stofnana.
Atómstöðin hefur yfir að ráða starfsfólki sem hefur góða yfirsýn yfir tæknilega hlið málanna jafnhliða skapandi framsetningu. Við úrlausn viðfangsefna er sérstök áhersla lögð á notagildi, ímynd og markaðssetningu.

Um eplica:

Eplica ehf. var stofnsett árið 2002 með það fyrir augum að markaðssetja vefumsjónarkerfið eplica.
eplica er sérlega öflugt vefumsjónarkerfi sem leysir af hólmi aðrar veflausnir á markaðnum.  Mikið hefur verið lagt upp úr einfaldleika í notkun, öryggi, góðri aðgangsstýringu og getu kerfisins.
Við hönnun vefumsjónarkerfisins eplica var byggt á umfangsmikilli reynslu af gerð vefsvæða og ríkum skilningi á hlutverkum og þörfum þeirra sem koma að skipulagningu, gerð, viðhaldi og rekstri þeirra.
Niðurstaðan eru tæknilegir yfirburðir sem felast í réttri hönnun, mikilli afkastagetu og miklum sveigjanleika.

Nánari upplýsingar er hægt að nálgast á info@eplica.is








litli

Þitt álit

skiptir okkur máli

Ábending, hrós eða kvörtun? Láttu okkur vita, hvað þér finnst.
Athugið: ekki er nauðsynlegt að gefa upp nafn, síma né netfang.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica