MP Verðbréf endurnýja vefsvæði sitt
MP Verðbréf er metnaðarfullt fyrirtæki sem heldur úti vef þar sem reglulega eru uppfærðar fréttir og greinarskrif. Auk þess sem helstu upplýsingar eins og gengi gjaldmiðla, helstu vísitölur og mestu breytingar á hlutabréfaverði eru birtar.
Vefurinn var hannaður af Arnari Ólafssyni hjá Curio en settur upp af starfsmönnum Eplica ehf.
Um MP Verðbréf
MP Verðbréf leggja kapp á að veita trausta og vandaða þjónustu sem stenst alþjóðlegan samanburð. Sérstök áhersla er lögð á trúnað við viðskiptavini og jafnframt að hagsmunir þeirra séu hafðir í fyrirrúmi. Til að tryggja að það gangi eftir er lögð áhersla á vandvirkni við framgang og frágang viðskipta og ávallt eru teknar ígrundaðar ákvarðanir sem miða að því að tryggja hag viðskipavina og fyrirtækisins
Um eplica:
Eplica ehf. var stofnsett árið 2002 með það fyrir augum að markaðssetja vefumsjónarkerfið eplica.
eplica er sérlega öflugt vefumsjónarkerfi sem leysir af hólmi aðrar veflausnir á markaðnum. Mikið hefur verið lagt upp úr einfaldleika í notkun, öryggi, góðri aðgangsstýringu og getu kerfisins.
Við hönnun vefumsjónarkerfisins eplica var byggt á umfangsmikilli reynslu af gerð vefsvæða og ríkum skilningi á hlutverkum og þörfum þeirra sem koma að skipulagningu, gerð, viðhaldi og rekstri þeirra.
Niðurstaðan eru tæknilegir yfirburðir sem felast í réttri hönnun, mikilli afkastagetu og miklum sveigjanleika.
Nánari upplýsingar er hægt að nálgast á info@eplica.is

