Fréttir

Akureyri sækir fram á völlinn með endurnýjuðum vef

15.6.2002

Sveitafélagið Akureyri hleypti nýverið af stokkunum nýjum vef sínum.

Á vefnum mun Akureyrarbær birta upplýsingar um það helsta sem gerist í bænum, menningarviðburði, fréttir af málefnum bæjarins, ferðamannaupplýsingar, upplýsingar um stjórnkerfi bæjarins.

Til að einfalda upplýsingamiðlun á þessum umfangsmikla vef var ákveðið að fella hann inn í vefumsjónarkerfið eplica.

Atómstöðin hannaði útlit vefsins en uppsetning hans var í höndum Eplica ehf.

Um Akureyrabæ
Akureyrar er fyrst getið árið 1562 þegar bærinn var lítið meira en verslunarhúsnæði danskra kaupmanna. Nú búa þar um 16.000 manns og staðurinn iðar af lífi.
Undanfarið hefur Akureyri verið að skapa sér sess sem skólabær við góðar undirtektir og er Háskólinn á Akureyri að mörgu leiti til fyrirmyndar sambærilegum stofnunum.
Menningarlífið á Akureyri er sömuleiðis til fyrirmyndar, listasýningar, tónleikar og leiklistarsýningar eru tíðar auk þess sem skemmtanalífið blómstrar.

Um Atómstöðina

Atómstöðin er fyrirtæki sem sérhæfir sig í viðmótshönnun og vefrænum lausnum í kynningarmálum og viðskiptum fyrirtækja og stofnana.
Atómstöðin hefur yfir að ráða starfsfólki sem hefur góða yfirsýn yfir tæknilega hlið málanna jafnhliða skapandi framsetningu. Við úrlausn viðfangsefna er sérstök áhersla lögð á notagildi, ímynd og markaðssetningu.

Um eplica
Eplica ehf. var stofnsett árið 2002 með það fyrir augum að markaðssetja vefumsjónarkerfið eplica.
eplica er sérlega öflugt vefumsjónarkerfi sem leysir af hólmi aðrar veflausnir á markaðnum.  Mikið hefur verið lagt upp úr einfaldleika í notkun, öryggi, góðri aðgangsstýringu og getu kerfisins.
Við hönnun vefumsjónarkerfisins eplica var byggt á umfangsmikilli reynslu af gerð vefsvæða og ríkum skilningi á hlutverkum og þörfum þeirra sem koma að skipulagningu, gerð, viðhaldi og rekstri þeirra.
Niðurstaðan eru tæknilegir yfirburðir sem felast í réttri hönnun, mikilli afkastagetu og miklum sveigjanleika.

Nánari upplýsingar er hægt að nálgast á info@eplica.is








litli

Þitt álit

skiptir okkur máli

Ábending, hrós eða kvörtun? Láttu okkur vita, hvað þér finnst.
Athugið: ekki er nauðsynlegt að gefa upp nafn, síma né netfang.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica