Fréttir

STEF opnar nýjan vef

4.6.2002

Samband tónskálda og eigenda flutningsréttar, STEF, opnaði nýlega upplýsingavef.

STEF veitir á vefnum upplýsingar um þá þjónustu sem samtökin veita. Einnig eru upplýsingar um þau lög sem starfað er eftir tilgang þeirra og fleira.

Vefurinn er settur upp í vefumsjónarkerfinu eplica en um hönnun sá Baldur Helgason.

Um STEF

STEF er höfundaréttarstofnun sem hefur haft það að markmiði frá upphafi að gæta hagsmuna innlendra og erlendra tónskálda, textahöfunda og annarra tengdra rétthafa á því sviði höfundaréttar.
STEF er sjálfseignarstofnun og er stýrt af fulltrúum þeirra sem aðild eiga að samtökunum. Það eru fyrst og fremst félög tónskálda og textahöfunda, sem fara með stjórn STEFs, en þessi félög eru: Tónskáldafélag Íslands og Félag tónskálda og textahöfunda.

Um eplica
Eplica ehf. var stofnsett árið 2002 með það fyrir augum að markaðssetja vefumsjónarkerfið eplica.
eplica er sérlega öflugt vefumsjónarkerfi sem leysir af hólmi aðrar veflausnir á markaðnum.  Mikið hefur verið lagt upp úr einfaldleika í notkun, öryggi, góðri aðgangsstýringu og getu kerfisins.
Við hönnun vefumsjónarkerfisins eplica var byggt á umfangsmikilli reynslu af gerð vefsvæða og ríkum skilningi á hlutverkum og þörfum þeirra sem koma að skipulagningu, gerð, viðhaldi og rekstri þeirra.
Niðurstaðan eru tæknilegir yfirburðir sem felast í réttri hönnun, mikilli afkastagetu og miklum sveigjanleika.

Nánari upplýsingar er hægt að nálgast á info@eplica.is








litli

Þitt álit

skiptir okkur máli

Ábending, hrós eða kvörtun? Láttu okkur vita, hvað þér finnst.
Athugið: ekki er nauðsynlegt að gefa upp nafn, síma né netfang.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica