Fréttir

Nýr vefur Námunnar hefur litið dagsins ljós

10.6.2002

Námsmannaþjónusta Landsbankans fær andlitslyftingu

Nýverið opnaði nýr vefur Námunnar þar sem félagar í Námsmannaþjónustu Landsbankans geta nýtt sér ýmis tilboð og þjónustu sem bankinn býður. 

Vefurinn keyrir í eplica vefumsjónarkerfinu.  En Landsbankinn hefur nýverið fest kaup á kerfinu mun í framhaldinu færa alla sína vefi inn í það. 

Hönnun vefsins var í höndum starfsmanna en uppsetning hans var í höndum starfsmanna Eplica ehf.

Um Landsbankann
Landsbankinn er eitt stærsta fjármálafyrirtæki landsins með eigið fé upp á um 15 milljarða króna og heildareignir upp á um 270 milljarða króna.
Landsbankasamstæðan samanstendur af:
- Landsbankanum
- Landsbankanum - Landsbréfum
- Heritable Bank í London
og reka allar einingar metnaðarfulla þjónustu við sína viðskiptavini.
Landsbankinn hefur með góðum árangri nýtt sér internetið til að bjóða viðskiptavinum sínum aukna þjónustu.

Um eplica
Eplica ehf. var stofnsett árið 2002 með það fyrir augum að markaðssetja vefumsjónarkerfið eplica.
eplica er sérlega öflugt vefumsjónarkerfi sem leysir af hólmi aðrar veflausnir á markaðnum.  Mikið hefur verið lagt upp úr einfaldleika í notkun, öryggi, góðri aðgangsstýringu og getu kerfisins.
Við hönnun vefumsjónarkerfisins eplica var byggt á umfangsmikilli reynslu af gerð vefsvæða og ríkum skilningi á hlutverkum og þörfum þeirra sem koma að skipulagningu, gerð, viðhaldi og rekstri þeirra.
Niðurstaðan eru tæknilegir yfirburðir sem felast í réttri hönnun, mikilli afkastagetu og miklum sveigjanleika.

Nánari upplýsingar er hægt að nálgast á info@eplica.is








litli

Þitt álit

skiptir okkur máli

Ábending, hrós eða kvörtun? Láttu okkur vita, hvað þér finnst.
Athugið: ekki er nauðsynlegt að gefa upp nafn, síma né netfang.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica