Fréttir

Dóms- og kirkjumálaráðuneytið velur eplica

25.8.2002

Endurnýjað vefsvæði Réttarheimildar.is verður keyrt í eplica

Dóms- og kirkjumálaráðuneytið hefur gengið til samninga um kaup á vefumsjónarkerfinu eplica fyrir vef sinn Réttarheimild.is þar sem birtar eru nýjungar í dómsmálum.  Vefsíðan mun sjá um að sækja upplýsingar um hæstaréttardóma, ný lög, nýjar reglugerðir, ný fellda stjórnvaldsúrskurði og margt fleira.  Þetta verður án efa vefsíða sem enginn sá sem fylgjast þarf með þessum málum má láta framhjá sér fara.

Notast var við eldra útlit vefsins sem en helsta breyting sem gerð var á notendaviðmóti var að Már Örlygsson sérfræðingur í vefaðgengi fólks með sérþarfir var falið að gera vefinn þannig úrgarði að þeir sem ekki geta nýtt sér hefðbundin stjórntæki eins og músina geti samt sem áður ferðast um vefinn og komist á áfangastað með sem áreynsluminnstum hætti.  Starfsmenn Eplica ehf. sáu um að setja vefinn upp í eplica vefumsjónarkerfinu.

Um eplica:
Eplica ehf. var stofnsett árið 2002 með það fyrir augum að markaðssetja vefumsjónarkerfið eplica.
eplica er sérlega öflugt vefumsjónarkerfi sem leysir af hólmi aðrar veflausnir á markaðnum.  Mikið hefur verið lagt upp úr einfaldleika í notkun, öryggi, góðri aðgangsstýringu og getu kerfisins.
Við hönnun vefumsjónarkerfisins eplica var byggt á umfangsmikilli reynslu af gerð vefsvæða og ríkum skilningi á hlutverkum og þörfum þeirra sem koma að skipulagningu, gerð, viðhaldi og rekstri þeirra.
Niðurstaðan eru tæknilegir yfirburðir sem felast í réttri hönnun, mikilli afkastagetu og miklum sveigjanleika.

Nánari upplýsingar er hægt að nálgast á info@eplica.is








litli

Þitt álit

skiptir okkur máli

Ábending, hrós eða kvörtun? Láttu okkur vita, hvað þér finnst.
Athugið: ekki er nauðsynlegt að gefa upp nafn, síma né netfang.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica