Allir í Strætó!
Strætó bs. mun ferðast um veraldarvefinn með eplica.
Gengið hefur verið frá samningum við Strætó bs. um að setja upp nýjan vef fyrirtækisins í vefumsjónarkerfinu eplica.
Strætó bs. hefur skrifað undir samning við Íslensku vefstofuna hf, og TrackWell Software um þróun og uppsetningu á á upplýsingakerfi fyrir viðskiptavini Strætó sem verður aðgengilegt í gegnum Netið.
Þetta kerfi er hluti af framtíðarsýn Strætó sem felst í því að veita viðskipavinum sínum alltaf nákvæmustu upplýsingar um ferðir strætisvagnanna og hagkvæmustu leiðir hverju sinni. Nýjasta hugbúnaðar- og fjarskiptatækni mun verða notuð til þess að gera aðgengi að þessum upplýsingum sem best fyrir viðskiptavini hverju sinni.
Í byrjun verða upplýsingarnar eingöngu aðgengilegar í gegnum Netið, en í náinni framtíð kemur þjónustan einnig til með að vera aðgengileg með öðrum fjarskiptabúnaði.
Íslenska Vefstofan hf. mun annast uppsetningu á vefumsjónarkerfinu eplica fyrir Strætó bs. auk þess að hanna nýtt útlit á vef Strætó bs.
Sjá ehf. sem sá um allan undirbúning, greiningu og útboð fyrir verkefnið mun áfram hafa yfirumsjón með verkefninu sem ráðgjafar Strætó bs. Gert er ráð fyrir að viðskiptavinir Strætó bs muni geta nýtt sér þessa þjónustu í lok ársins.
Um Strætó bs
Markmiðið Strætó bs. er að efla almenningssamgöngur, bæta þjónustu og auka hagkvæmni. Fyrirtækið starfrækir almenningsvagnaþjónustu á svæðinu með einu leiðakerfi og einni gjaldskrá og leitar hverju sinni hagkvæmustu leiða í rekstri og starfrækslu.
Fyrirtækið hefur jafnframt yfirumsjón með allri ferðaþjónustu fatlaðra á svæðinu.
Strætó bs. er í eigu Reykjavíkurborgar, Kópavogsbæjar, Hafnarfjarðarbæjar, Garðabæjar, Mosfellsbæjar, Seltjarnarneskaupstaðar og Bessastaðahrepps.
Um Íslensku Vefstofuna
Stofan er eitt af eldri veffyrirtækjum landsins. Hjá fyrirtækinu starfar samstilltur hópur sérfræðinga með mikla þekkingu og reynslu af gerð veflausna. Sérstök áhersla hefur verið lögð á fagleg vinnubrögð, sköpunargáfu og gæði við úrlausnir viðfangsefna fyrir viðskiptavini.
Um TracWell Software
TrackWell var stofnað árið 1996 og hefur einbeitt sér að staðsetningargrundvölluðum þjónustum (e. Location-based services) og fleiri þjónustur við farsímageirann. Félagið hefur þróað staðsetningarbúnað sem vinnur út frá staðsetningu farsíma innan símakerfa og fleiri áhugaverðar lausnir.
Um Sjá viðmótsprófanir
Sjá viðmótsprófanir sérhæfir sig í prófunum á viðmóti og ráðgjöf sem tengist því. Sjá framkvæmir prófanir ásamt því að gera úttektir á vefjum eða hvers kyns kerfum og hugbúnaði. Prófanir felast í framkvæmd nytsemismats og sérfræðingamats á vefjum jafnt sem hugbúnaði og hvers kyns úttektum og samantektum þar að lútandi. Fyrirtækið hefur yfir að ráða þekkingarbanka með upplýsingum um vefhegðun og skynjunarferla. En mikilvægt er að nota þessar upplýsingar á markvissan hátt í því skyni að auka nytsemi vefja og kerfa. Ráðgjöf Sjá miðar að því að auðvelda fyrirtækjum að koma til móts við kröfur notenda um nytsemi og gagnvirkni. Fyrirtæki eru aðstoðuð við að taka mikilvægar ákvarðanir um hvernig best er að byggja upp vef eða kerfi. Ráðgjöfin felst einnig í hugmyndavinnu sem eykur gagnsemi og verðmæti vefja.
Um eplica
Eplica ehf. var stofnsett árið 2002 með það fyrir augum að markaðssetja vefumsjónarkerfið eplica.
eplica er sérlega öflugt vefumsjónarkerfi sem leysir af hólmi aðrar veflausnir á markaðnum. Mikið hefur verið lagt upp úr einfaldleika í notkun, öryggi, góðri aðgangsstýringu og getu kerfisins.
Við hönnun vefumsjónarkerfisins eplica var byggt á umfangsmikilli reynslu af gerð vefsvæða og ríkum skilningi á hlutverkum og þörfum þeirra sem koma að skipulagningu, gerð, viðhaldi og rekstri þeirra.
Niðurstaðan eru tæknilegir yfirburðir sem felast í réttri hönnun, mikilli afkastagetu og miklum sveigjanleika.
Nánari upplýsingar er hægt að nálgast á info@eplica.is

