Eplica á Ratsjánni
Ratstjárstofnun og Íslenska vefstofan hf. hafa undirritað samstarfssamning um smíði vefjar fyrir Ratstjárstofnun. Vefurinn mun fyrst og fremst þjóna hlutverki upplýsingaveitu um starfsemi og hlutverk stofnunarinnar. Íslenska vefstofan mun annast greiningu, viðmótshönnun og smíði vefjarins en vefurinn verður settur upp í vefumsjónarkerfinu eplica. Áætlað er að hinn nýji vefur verði tilbúinn í byrjun desember 2002
Um Ratsjárstofnum
Ratsjárstofnun er sérstök stofnun á vegum utanríkisráðuneytisins. Ratsjárstofnun annast rekstur ratsjárkerfis, sem íslensk stjórnvöld starfrækja eða láta starfrækja í þágu varna landsins, á grundvelli varnarsamnings Íslands og Bandaríkjanna frá 1951 og viðbótarsamninga við þann samning sem gerðir hafa verið eða gerðir kunna að verða. Ratsjárstofnun annast rekstur ratsjárstöðva á Bolafjalli, Gunnólfsvíkurfjalli, Stokksnesi og Miðnesheiði.
Um Íslensku Vefstofuna
Stofan er eitt af eldri veffyrirtækjum landsins. Hjá fyrirtækinu starfar samstilltur hópur sérfræðinga með mikla þekkingu og reynslu af gerð veflausna. Sérstök áhersla hefur verið lögð á fagleg vinnubrögð, sköpunargáfu og gæði við úrlausnir viðfangsefna fyrir viðskiptavini.
Um eplica
Eplica ehf. var stofnsett árið 2002 með það fyrir augum að markaðssetja vefumsjónarkerfið eplica.
eplica er sérlega öflugt vefumsjónarkerfi sem leysir af hólmi aðrar veflausnir á markaðnum. Mikið hefur verið lagt upp úr einfaldleika í notkun, öryggi, góðri aðgangsstýringu og getu kerfisins.
Við hönnun vefumsjónarkerfisins eplica var byggt á umfangsmikilli reynslu af gerð vefsvæða og ríkum skilningi á hlutverkum og þörfum þeirra sem koma að skipulagningu, gerð, viðhaldi og rekstri þeirra.
Niðurstaðan eru tæknilegir yfirburðir sem felast í réttri hönnun, mikilli afkastagetu og miklum sveigjanleika.
Nánari upplýsingar er hægt að nálgast á info@eplica.is

