Tilboð á eplica framlengt
Eftir frábærar viðtökur sem eplica fékk á Agora sýningunni hefur verið ákveðið að lengja gildistíma tilboðs á vefumsjónarkerfinu fram til 15. nóvember.
Í því felst að með hverju keyptu vefumsjónarkerfi fylgja þrjú ókeypis viðbótarkerfi. Úr ýmsu er að velja því meðal þeirra viðbóta sem tilbúnar eru má nefna:
- Atburðadagatal
- Atriðisorðaskrá
- Auglýsingakerfi
- Áskriftakerfi
- Fyrirtækja og þjónustuskrá
- Gengisskráningakerfi
- Kosninga- og kannanakerfi
- Póstlistakerfi
Eins og sjá má er þetta verulegur kaupauki fyrir viðskiptavini Eplica ehf. og vonast er til að með því sé hægt að koma vel til móts við þarfir þeirra.
Um eplica:
Eplica ehf. var stofnsett árið 2002 með það fyrir augum að markaðssetja vefumsýslukerfið eplica.
eplica er sérlega öflugt vefumsjónarkerfi sem leysir af hólmi aðrar veflausnir á markaðnum. Mikið hefur verið lagt upp úr einfaldleika í notkun, öryggi, góðri aðgangsstýringu og getu kerfisins.
Við hönnun vefumsjónarkerfisins eplica var byggt á umfangsmikilli reynslu af gerð vefsvæða og ríkum skilningi á hlutverkum og þörfum þeirra sem koma að skipulagningu, gerð, viðhaldi og rekstri þeirra.
Niðurstaðan eru tæknilegir yfirburðir sem felast í réttri hönnun, mikilli afkastagetu og miklum sveigjanleika.
Nánari upplýsingar er hægt að nálgast á info@eplica.is

