Fréttir

Kosningar nálgast

22.10.2002

Dóms- og kirkjumálaráðuneytið hefur ákveðið að ganga til samninga um að nota eplica vefumsjónarkerfið fyrir kosningavef sinn fyrir komandi alþingiskosningar.

Á Hinum nýja vef Dóms- og kirkjumálaráðuneytisins sem mun verða á slóðinni kosningar2003.is verða birtar allar helstu upplýsingar sem þörf er á í aðdraganda kosninganna og við framkvæmd þeirra sjálfra.

Um hönnun sér fyrirtækið Fastland, textavinnsla verður í höndum Dóms og kirkjumálaráðuneytisins en um uppsetningu sjá starfsmenn Eplica.

Um Dóms- og kirkjumálaráðuneytið
Meginhlutverk dóms- og kirkjumálaráðuneytisins er að sjá til þess að réttindi borgaranna séu virt og að lögum og reglu sé haldið uppi. Þá fer ráðuneytið með málefni, er varða þjóðkirkjuna og önnur trúfélög á Íslandi, svo og málefni kirkjugarða. Með almennri stefnumörkun og mótun lagareglna vill ráðuneytið njóta trausts fyrir áreiðanlega og skilvirka yfirstjórn þeirrar þjónustu við almenning, sem það ber ábyrgð á, samkvæmt lögum um stjórnarráð Íslands.

Um eplica:
Eplica ehf
. var stofnsett árið 2002 með það fyrir augum að markaðssetja vefumsjónarkerfið eplica.
eplica er sérlega öflugt vefumsjónarkerfi sem leysir af hólmi aðrar veflausnir á markaðnum.  Mikið hefur verið lagt upp úr einfaldleika í notkun, öryggi, góðri aðgangsstýringu og getu kerfisins.
Við hönnun vefumsjónarkerfisins eplica var byggt á umfangsmikilli reynslu af gerð vefsvæða og ríkum skilningi á hlutverkum og þörfum þeirra sem koma að skipulagningu, gerð, viðhaldi og rekstri þeirra.
Niðurstaðan eru tæknilegir yfirburðir sem felast í réttri hönnun, mikilli afkastagetu og miklum sveigjanleika.

Nánari upplýsingar er hægt að nálgast hjá info@eplica.is








litli

Þitt álit

skiptir okkur máli

Ábending, hrós eða kvörtun? Láttu okkur vita, hvað þér finnst.
Athugið: ekki er nauðsynlegt að gefa upp nafn, síma né netfang.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica