Hafið bláa hafið fær eigin vef
Það er sérstök ánægja að kynna nýjan vef fyrir Ríkisútvarpið sjónvarp þar sem þættirnir Hafið bláa hafið (e. Blue planet) verða kynntir auk þess sem boðið verður upp á leiki, ýmsa afþreyingu og upplýsingar tengda hafinu og sjávarlífverum.
Þættirnir voru unnir og sýndir af breska ríkisútvarpinu BBC og hefur Sjónvarpið keypt sýningarréttinn.
Um þýðingu á efni fyrir vefinn sér RÚV, BBC hannar útlit og vefar og starfsmenn Eplica ehf. setja vefinn inn í nýja kerfið.
Um Ríkisútvarpið sjónvarp
Ríkisútvarpið er sjálfstæð stofnun sem heyrir undir menntamálaráðuneytið. Ríkisútvarpið skal m.a. veita almenna fréttaþjónustu og vera vettvangur fyrir mismunandi skoðanir á þeim málum sem efst eru á baugi hverju sinni eða almenning varða. Það skal flytja fjölbreytt skemmtiefni við hæfi fólks á öllum aldri. Sérstaklega skal þess gætt að hafa á boðstólum fjölbreytt efni við hæfi barna, jafnt í hljóðvarpi og sjónvarpi. Ríkisútvarpið skal flytja efni m.a. á sviði lista og bókmennta, vísinda og sögu auk tónlistar. Það skal veita almenna fræðslu og gera sjálfstæða dagskrárþætti er snerta Ísland eða Íslendinga sérstaklega.
Um eplica:
Eplica ehf. var stofnsett árið 2002 með það fyrir augum að markaðssetja vefumsjónarkerfið eplica.
eplica er sérlega öflugt vefumsjónarkerfi sem leysir af hólmi aðrar veflausnir á markaðnum. Mikið hefur verið lagt upp úr einfaldleika í notkun, öryggi, góðri aðgangsstýringu og getu kerfisins.
Við hönnun vefumsjónarkerfisins eplica var byggt á umfangsmikilli reynslu af gerð vefsvæða og ríkum skilningi á hlutverkum og þörfum þeirra sem koma að skipulagningu, gerð, viðhaldi og rekstri þeirra.
Niðurstaðan eru tæknilegir yfirburðir sem felast í réttri hönnun, mikilli afkastagetu og miklum sveigjanleika.
Nánari upplýsingar er hægt að nálgast hjá info@eplica.is

