Fréttir

Vefsvæði Akureyrarbæjar eykur heimsóknarfjölda um 360 prósent

31.10.2002

Nýr vefur Akureyrarbæjar hefur fengið frábærar viðtökur og er orðinn vinsælastur af vefjum sveitarfélaga á landinu.

Af vefsvæði Akureyrarbæjar

Upp um 360 prósent!

Enginn þettbýliskjarni á landinu, hvorki bær né borg, státar af jafn vinsælli heimasíðu og Akureyrarbær, samkvæmt upplýsingum frá Modernus, Samræmdri vefmælingu. Ný og endurbætt heimasíða bæjarins var opnuð í seinni hluta júnímánaðar og síðan hefur orðið gríðarleg fjölgun á heimsóknum og flettingum. Í maí voru flettingar á síðunni um 14.000 en í ágúst síðastliðnum voru þær komnar í rúm 50.000. Gestum hefur fjölgað heldur minna í hundraðshlutum talið, sem sýnir að þeir sem á annað borð heimsækja síðuna eru ánægðari með það sem þeir finna þar og nota vefsíðuna mun meira en áður. Gestum hefur þó fjölgað umtalsvert.

Vefstjóri á www.akureyri.is segir að þessi mikla fjölgun flettinga sé í hæsta máta skiljanleg þar sem heimasíðan hafi verið útfærð frá því að þjóna eingöngu þeim sem áttu eitthvað til bæjarkerfisins að sækja yfir í að þjóna öllum þeim sem hafa eitthvað til Akureyrar að sækja, hvort sem um er að ræða húsaleigubætur, skíðaferð, kaffibolla eða myndlistarsýningar. Heimasíðan geymi gríðarlegt magn upplýsinga og endurspegli þá staðreynd að Akureyri sé bær allra lífsins gæða.

Af vef Akureyrar, birt með leyfi höfundar








litli

Þitt álit

skiptir okkur máli

Ábending, hrós eða kvörtun? Láttu okkur vita, hvað þér finnst.
Athugið: ekki er nauðsynlegt að gefa upp nafn, síma né netfang.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica