Fréttir

Alþingiskosningar 2003

Kosningavefur Dóms- og kirkjumálaráðuneytisins opnar

11.11.2002

Dóms- og kirkjumálaráðuneytið opnaði í dag nýjan vef um komandi alþingiskosningar við hátíðlega athöfn. 

Vefurinn sem heitir Kosningar2003.is er upplýsingaveita um allt er lýtur að komandi alþingiskosningum.  Fjallað er um nýja kjördæmaskipan og hún skoðuð með myndrænni framsetningu og skýringum, Lög og reglugerðir um framkvæmd þingkosninga fá sitt pláss, upplýsingar fyrir framboðsaðila og kjósendur auk tölulegra staðreynda úr fyrri kosningum.

Þegar nær dregur kosningum verður jafnframt hægt að fá upplýsingar um framboðslista og kjörstaði.

Boðið er upp á að senda fyrirspurnir til ráðuneytisins um hvaðeina sem lýtur að framkvæmd alþingiskosninganna.

Dóms- og kirkjumálaráðuneytið hefur auk þessa stigið skref í framfaraátt fyrir notendur með fötlun eða tæknilegar sérþarfir.  Þannig er lögð sérstök áhersla á að vefurinn sé aðgengilegur blindum og sjónskertum því efni hans er sett upp þannig að þeir sem notast þurfa við talgervla til að lesa fyrir sig efni vefsins og þeir sem nota Braille letur eigi auðvelt með að nálgast það.

Sólveig Pétursdóttir, dóms- og kirkjumálaráðherra, opnaði upplýsingavefinn og sagði af því tilefni að með vefnum væri stigið: "enn eitt skref í átt til þess að gera upplýsingar stjórnvalda enn aðgengilegri öllum almenningi."

Smíði vefsins og hönnun var í höndum Hugsmiðjunnar, vefun var í höndum Más Örlygssonar og auglýsingastofan Fastland sá um útlitshönnun.

Um Dóms- og kirkjumálaráðuneytið
Meginhlutverk dóms- og kirkjumálaráðuneytisins er að sjá til þess að réttindi borgaranna séu virt og að lögum og reglu sé haldið uppi. Þá fer ráðuneytið með málefni, er varða þjóðkirkjuna og önnur trúfélög á Íslandi, svo og málefni kirkjugarða. Með almennri stefnumörkun og mótun lagareglna vill ráðuneytið njóta trausts fyrir áreiðanlega og skilvirka yfirstjórn þeirrar þjónustu við almenning, sem það ber ábyrgð á, samkvæmt lögum um stjórnarráð Íslands.

Um eplica:
Eplica ehf
. var stofnsett árið 2002 með það fyrir augum að markaðssetja vefumsjónarkerfið eplica.
eplica er sérlega öflugt vefumsjónarkerfi sem leysir af hólmi aðrar veflausnir á markaðnum.  Mikið hefur verið lagt upp úr einfaldleika í notkun, öryggi, góðri aðgangsstýringu og getu kerfisins.
Við hönnun vefumsjónarkerfisins eplica var byggt á umfangsmikilli reynslu af gerð vefsvæða og ríkum skilningi á hlutverkum og þörfum þeirra sem koma að skipulagningu, gerð, viðhaldi og rekstri þeirra.
Niðurstaðan eru tæknilegir yfirburðir sem felast í réttri hönnun, mikilli afkastagetu og miklum sveigjanleika.

Nánari upplýsingar er hægt að nálgast hjá info@eplica.is








litli
Þetta vefsvæði byggir á Eplica