Umhverfisstofnun velur eplica
Ný stofnun, Umhverfisstofnun mun nýta eplica vefumsjónarkerfið til að stýra vefsvæði sínu. Umhverfisstofnun er ætlað að hafa umsjá með hollustuháttum, mengunarvörnum, náttúruvernd og dýravernd.
Umhverfisstofnun leysir af hólmi Náttúruvernd ríkisins, Hollustuvernd ríkisins, Veiðistjóraembættið, Hreindýraráð og Dýraverndunarráð. Það er þannig ljóst að um nýjum vef er ætlað veita umfangsmikla þjónustu og aðgengi að upplýsingum frá öllum þeim málaflokkum sem undir ofangreind embætti heyra.
Lögð verður áhersla á að vefurinn sé aðgengilegur fötluðum og fólki með tæknilegar sérþarfir. Þannig eiga bæði þeir sem aðeins búa yfir lágmarksbúnaði að geta ferðast auðveldlega um vefsvæðið rétt eins og þeir sem nota vafra sem nýtir talgervla.
Umhverfisstofnun fylgir þannig í fótspor annara sem þegar hafa fetað þá braut eins og Dóms- og kirkjumálaráðuneytið og Björn Bjarnason alþingismaður.
"Þarna er áhugaverður samruni að verða hjá ríkisstofnunum og það verður skemmtileg áskorun að aðstoða þær við að koma upp nýju vefsvæði sem eykur aðgengi flestra þjóðfélagshópa að upplýsingum.
Um eplica:
Eplica ehf. var stofnsett árið 2002 með það fyrir augum að markaðssetja vefumsjónarkerfið eplica.
eplica er sérlega öflugt vefumsjónarkerfi sem leysir af hólmi aðrar veflausnir á markaðnum. Mikið hefur verið lagt upp úr einfaldleika í notkun, öryggi, góðri aðgangsstýringu og getu kerfisins.
Við hönnun vefumsjónarkerfisins eplica var byggt á umfangsmikilli reynslu af gerð vefsvæða og ríkum skilningi á hlutverkum og þörfum þeirra sem koma að skipulagningu, gerð, viðhaldi og rekstri þeirra.
Niðurstaðan eru tæknilegir yfirburðir sem felast í réttri hönnun, mikilli afkastagetu og miklum sveigjanleika.
Nánari upplýsingar er hægt að nálgast hjá info@eplica.is

