Björn Bjarnason alþingismaður opnar nýja og endurbætta vefsíðu
Björn Bjarnason opnaði í dag nýja og endurbætta vefsíðu sína www.bjorn.is. Björn hefur eins og alþjóð veit verið einna ötulastur stjórnmálamanna við notkun vefsins.
Við uppfærslu vefsins var nýjum vinnuaðferðum beitt sem tryggja fullkomið aðgengi blindra, fatlaðra og fólks með tæknilegar sérþarfir. Hver síða er hönnuð og forrituð þannig að innihald hennar er aðgengilegt með lágmarks búnaði og í vöfrum sem nýta talgervla. Engu að síður uppfyllir útlit síðunnar ströngustu útlitskröfur í öllum nýjustu vöfrum auk þess sem sérstaklega er hugað að því að framsetning á efni síðunnar sé prentvæn.
Gestir á heimasíðu Björns geta eins og áður fengið sendar tilkynningar í tölvupósti um nýtt efni en auk þess er boðið upp á þá nýjung að hægt verður að nálgast tilkynningar um nýjar greinar á svokölluðu RSS formi. Notkun RSS skráarsniðsins býður upp á einstaklega skemmtilega eiginleika í efnismiðlun. Þannig getur Björn skrifað greinar og birt á eigin vefsvæði en samtímis getur greinin birtst á öðrum vefsíðum sem nýta sér RSS efnisveituna.
"Mér finnst þetta mjög áhugaverð nálgun og undur internetsins virðast engan enda ætla að taka. Eitt það ánægjulegasta í starfi mínu eru þau samskipti sem ég á við umbjóðendur mína og ég var fljótur að sjá að internetið væri ákjósanlegur miðill til þess. Þessar nýjustu viðbætur gera mér kleift að ná til enn fleiri einstaklinga. Manni finnst í raun skrítið að ekki skuli vera hugað betur að aðgengi fólks með sérþarfi að upplýsingaveitum internetsins.
Ég hef fylgt internetvæðingunni frá byrjun, opnaði vefsíðu 1995 og mér finnst afar gleðilegt að fylgja þessari þróun þar sem opin skoðanaskipti styrkja frelsi og lýðræði í sessi" segir Björn.
"Það er mjög ánægjulegt að Björn skuli kjósa að nota Eplica vefumsjónarkerfið og þá möguleika sem það býður upp á. Að öðrum ólöstuðum stendur Björn einna fremst þingmanna í að halda sambandi við sína umbjóðendur gegnum vefinn. Nú hefur hann stigið enn eitt skrefið og eykur aðgengi lesenda sinna til muna.
Þetta er mjög áhugaverð þróun og gaman að taka þátt í henni" segir Stefán Baxter framkvæmdastjóri Hugmiðjunnar sem vann að uppsetningu vefsins fyrir Björn en hönnun hans var í höndum auglýsingastofunnar Nýjustu tísku og vísinda.
Um Eplica
Hugsmiðjan ehf. var stofnsett árið 2001 og hefur undanfarið ár unnið að markaðssetningu vefumsjónarkerfisins Eplica.
Eplica er sérlega öflugt vefumsjónarkerfi sem leysir af hólmi aðrar veflausnir á markaðnum. Mikið hefur verið lagt upp úr einfaldleika í notkun, öryggi, góðri aðgangsstýringu, sveigjanleika og afkastagetu kerfisins.
Við hönnun Eplica er byggt á umfangsmikilli reynslu af gerð vefsvæða og ríkum skilningi á hlutverkum og þörfum þeirra sem koma að skipulagningu, gerð, viðhaldi og rekstri þeirra.
Niðurstaðan eru tæknilegir yfirburðir sem felast í réttri hönnun, mikilli afkastagetu og sveigjanleika. Nánari upplýsingar má nálgast hjá info@eplica.is.

