Nýr vefur Byggðastofnunar mun keyra í eplica
Í gær var undirritaður samningur um að Athygli á Akureyri annist gerð nýrrar heimasíðu fyrir Byggðastofnun. Samninginn undirrituðu Jóhann Ó. Halldórsson fyrir hönd Athygli og Aðalsteinn Þorsteinsson, forstjóri Byggðastofnuna.
Þess má til gamans geta að þetta var fyrsta verkefni Aðalsteins eftir að hann hafði fengið símhringingu frá Valgerði Sverrisdóttur, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, þar sem hún tilkynnti honum þá ákvörðun að velja Aðalstein úr hópi 16 umsækjenda um starf forstjóra Byggðastofnunar til næstu fimm ára.
Markmið Byggðastofnunar er að með síðunni verði byggður upp vandaður upplýsingabanki um þróun og stöðu byggðamála á Íslandi, jafnframt því sem á síðunni verður að finna ítarlegar upplýsingar um starfsemi og þjónustu stofnunarinnar.
Upplýsingaveita um byggðamál
Aðalsteinn Þorsteinsson, forstjóri Byggðastofnunar, segir að mikilvægt fyrir Byggðastofnun að nýta sér kosti Netsins til að miðla upplýsingum um þróun byggðamála á Íslandi.
"Byggðastofnun er ætlað að gegna mikilvægu hlutverki í byggðaþróun á Íslandi. Stofnunin starfar samkvæmt stefnumótandi byggðaáætlun frá Alþingi, annast bæði fjármálalega fyrirgreiðslu við fyrirtæki á landsbyggðinni en kemur einnig að mörgum rannsóknarverkefnum sem varða byggðaþróun í landinu. Með því að byggja upp vandaðan upplýsingabanka á Netinu er ætlun okkar að gera upplýsingar betur aðgengilegar almenningi og birta í framtíðinni sem nýjastar tölulegar upplýsingar um þróun byggðamála. Þannig má segja að við ætlum okkur í senn að endurnýja heimasíðu Byggðastofnunar og byggja um leið upp upplýsingaveitu á Netinu um byggðamál á Íslandi," segir Aðalsteinn Þorsteinsson.
Miðað er við að nýja heimasíðan verði opnuð þann 1. febrúar næstkomandi.
Atómstöðin og Athygli munu vinna vefinn í sameiningu en hann mun keyra í vefumsjónarkerfinu eplica.
Nánari upplýsingar um eplica má nálgast hjá info@eplica.is

