Fréttir

Hönnun opnar nýja vefsíðu í eplica 

27.11.2002

Hönnun hefur tekið í notkun nýtt vefumsjónarkerfi til að auðvelda framsetningu og einfalda umjón upplýsinga á heimasíðu Hönnunar. 


Umfang heimasíðunnar hefur aukist stöðugt frá því að hún var sett í loftið í mars árið 2000. Vefurinn er settur upp og hannaður af Atómstöðinni í eplica vefkerfinu í samstarfi við Hugsmiðjuna.

Til stendur að auka upplýsingar um starfsfólk Hönnunar, menntun þess og starfsreynslu svo og þau fjölmörgu verkefni sem Hönnun hefur komið að. Inni á heimasíðunni má nú t.d. finna mikið magn upplýsinga um starfsemi fyrirtækisins, matsskýrslur og aðrar skýrslur tengdar mati á umhverfisáhrifum.

Í nýja kerfinu má finna fréttir allt frá desember 2000 og möguleikar í framsetningu myndefnis aukast og allar aðgerðir til að breyta uppsetningu greina og frétta eru mun einfaldari en áður.

Þá heldur kerfið utan um allar skrár, hvort sem um er að ræða myndir, viðskiptaskjöl, hljóð- eða margmiðlunarskrár. Síðast en ekki síst eru allar leiðbeiningar í eplicu á íslensku.

Af vef Hönnunar www.honnun.is

Um Hönnun
Hönnun hefur annast ráðgjöf og alhliða verkfræðiþjónustu vegna fjölda mannvirkja um land allt á liðnum árum. Þar má nefna skóla, íþróttahús, sjúkrahús, ýmsar opinberar byggingar, íbúðar- og atvinnuhúsnæði af ýmsu tagi. Verkfræðiþjónusta fyrir sveitarfélög, t.d. vegna gatnagerðar og veitukerfa hefur ávallt verið stór hluti af starfseminni en einnig hefur verið um að ræða vinnu við brýr, hafnargerð, áætlanagerð og matsgerðir fyrir opinberar stofnanir og einkaaðila. Loks má nefna undirbúning, hönnun og eftirlit vegna orkumannvirkja, einkum vatnsaflsvirkjana og háspennulína.

Um eplica
Eplica ehf
. var stofnsett árið 2002 með það fyrir augum að markaðssetja vefumsjónarkerfið eplica.
eplica er sérlega öflugt vefumsjónarkerfi sem leysir af hólmi aðrar veflausnir á markaðnum.  Mikið hefur verið lagt upp úr einfaldleika í notkun, öryggi, góðri aðgangsstýringu og getu kerfisins.
Við hönnun vefumsjónarkerfisins eplica var byggt á umfangsmikilli reynslu af gerð vefsvæða og ríkum skilningi á hlutverkum og þörfum þeirra sem koma að skipulagningu, gerð, viðhaldi og rekstri þeirra.
Niðurstaðan eru tæknilegir yfirburðir sem felast í réttri hönnun, mikilli afkastagetu og miklum sveigjanleika.

Nánari upplýsingar er hægt að nálgast hjá info@eplica.is








litli

Þitt álit

skiptir okkur máli

Ábending, hrós eða kvörtun? Láttu okkur vita, hvað þér finnst.
Athugið: ekki er nauðsynlegt að gefa upp nafn, síma né netfang.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica