Fréttir

Hugsmiðjan aðstoðar Úrval Útsýn við gerð nýs vefsvæðis

27.8.2003

Nýlega valdi ferðaskrifstofan Úrval Útsýn Hugsmiðjuna sem samstarfsaðila við þróun og uppsetningu vefsvæðis síns.

Vefurinn mun nýta sér kosti eplica vefumsjónarkerfisins. eplica verður notað til að miðla upplýsingum úr fleiri kerfum Úrvals Útsýnar til notenda þannig að hægt verði að ganga algerlega frá kaupum á utanlandsferð yfir vefinn.

„Þetta er mjög áhugaverður viðskiptavinur í ljósi þess að Úrval Útsýn er mjög krefjandi viðskiptavinir. Fyrirtækið þarf sífellt að gera aðlaganir á vöruframboði sínu leggur mjög mikla áherslu á að markaðsstarf sitt sé eins og best verður á kosið“ segir Þorsteinn Yngvi Guðmundsson markaðsstjóri Hugsmiðjunnar.

Nánari upplýsingar um vefumsjónarkerfið eplica er hægt að fá með því að panta kynningu eða hafa samband við Hugsmiðjuna








litli
Þetta vefsvæði byggir á Eplica