Fréttir

Plúsferðir í hóp notenda eplica vefumsjónarkerfisins

2.9.2003

Nýverið gerðu Hugsmiðjan og Plúsferðir með sér samkomulag sem lýtur að því að Plúsferðir nýti eplica vefumsjónarkerfið við rekstur vefsvæðis síns.

Leitast verður við að gera umsjón og rekstur nýs og betri vefjar auðveldari en á eldri útgáfu hans. Enda gerir hin mikla samkeppni í ferðageiranum ferðaþjónustuaðilum nauðsynlegt að leggja mikla áherslu á að geta brugðist hratt og örugglega við breytingum sem gera þarf á verðum, ferðaframboði og annari þjónustu. Þáttur í því er að halda úti vefsíðu sem kynnir starfsemi fyrirtækisins á viðeigandi hátt.

Útlitshönnun vefsins er þegar hafin og þess er að vænta að efnisinnsetning fyrir vefinn hefjist innan skamms.

Nánari upplýsingar um vefumsjónarkerfið eplica er hægt að fá með því að panta kynningu eða hafa samband við Hugsmiðjuna








litli

Þitt álit

skiptir okkur máli

Ábending, hrós eða kvörtun? Láttu okkur vita, hvað þér finnst.
Athugið: ekki er nauðsynlegt að gefa upp nafn, síma né netfang.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica