Ferðaskrifstofa Íslands semur um notkun eplica vefumsjónarkerfisins
Ferðaskrifstofa Íslands hefur samið við Hugsmiðjuna um uppsetningu á vefsvæði sínu í vefumsjónarkerfinu eplica.
Nýtt og endurbætt vefsvæði Ferðaskrifstofu Íslands mun styðja við markaðsstarf fyrirtækisins og lögð verður áhersla á að þjónusta sem best viðskiptavinahóp fyrirtæksins sem nýverið hefur gengið í gegnum talsverðar breytingar. Eftir breytingarnar þar sem skipt var upp utanlands- og innanlandsdeildum fyrirtækisins verður lögð sérstök áhersla á sölu viðskiptaferða til Íslendinga.
Útlitshönnun vefsins er þegar langt komin og uppsetning vefsvæðisins að hefjast.
Nánari upplýsingar um vefumsjónarkerfið eplica er hægt að fá með því að panta kynningu eða hafa samband við Hugsmiðjuna

