Fréttir
Ásgrímur Sverrisson ráðinn vefstjóri Kvikmyndamiðstöðvar Íslands
Nýverið gekk Ásgrímur til liðs við Kvikmyndamiðstöðina sem vefstjóri og mun hann sjá um alla vefi sem tengjast Kvikmyndamiðstöðinni.
Alls er um 3 vefi að ræða. Kvikmyndamiðstöðinni er fengur að öðrum eins sérfræðingi í kvikmyndagerð og kvikmyndum nýjum og gömlum enda hefur Ásgrímur um árabil haldið úti kvikmyndagagnríni í fjölmiðlum, haldið úti vef sínum www.asgrimur.is.
Ásgrímur menntaði sig í kvikmyndagerð í Bretlandi og hefur síðan unnið að kvikmyndagerð bæði fyrir sjónvarp og kvikmyndahús ásamt því að sinna fjölmiðlastörfum.
