Fréttir

Umboðsskrifstofan Opið.NET semur um notkun eplica fyrir umbjóðendur sína

10.8.2003

Meðal þeirra sem notast munu við kerfið verða vefsvæði hljómsveitanna Quarashi og Vínils.

Fyrstu skrefin hafa þegar verið hafin og hefur Reynir Pálsson hönnuður fyrir hönd Hugsmiðjunnar hafið útlitshönnun á vefsvæði Quarashi. En hljómsveitin hefur hingað til haldið úti vef sínum í tengslum við vefsvæði SONY í Japan. Nú hefur verið ákveðið að til að auðvelda umsjón vefsvæðisins og tryggja að nýjustu fréttir séu jafnan aðgengilegar skuli Opið.NET ásamt meðlimum Quarashi taka að sér vefumsjónina.

Mikill metnaður lýsir sér í undirbúningsvinnu enda er verið að endurhanna allt útlit sem tengist hljómsveitinni. Búast má við að með nýjum vef muni aðdáendur hljómsveitarinnar ekki aðeins fá að sjá nýtt og glæsilegt útlit heldur muni þeir einnig fá að sjá heilmikið af nýrri þjónustu sem þeir hafa ekki séð áður auk þess sem þeir geti nálgast ýmislegt áhugavert efni sem þeim hefur ekki verið aðgengilegt áður.

Gert er ráð fyrir að vefurinn verði sérstaklega gerður aðgengilegur fyrir japanska lesendur hans enda hefur hljómsveitin notið mikillar velgengni í Japan.








litli

Þitt álit

skiptir okkur máli

Ábending, hrós eða kvörtun? Láttu okkur vita, hvað þér finnst.
Athugið: ekki er nauðsynlegt að gefa upp nafn, síma né netfang.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica