Fréttir

Kennsla hefst fyrir starfsmenn Stjórnarráðsins

18.8.2003

Helstu vefstjórar ráðuneytanna setjast á skólabekk til að læra á eplica vefumsjónarkerfið

Eins og aðrir viðskiptavinir Hugsmiðjunnar fær Stjórnarráðið kennslu á vefumsjónarkerfið eftir kaup á því.

Kennslunni er skipt í tvennt, annars vegar fá vefstjórar kennslu í meðferð eininga innan kerfisins, verkefni sem tengjast ritstjórn innan kerfisins, uppbyggingu vefsíðna  og annað sem vefstjórar þurfa að geta gert. Hins vegar eru það svo almennir efnishöfundar sem þurfa að kunna að skrá nýtt efni í kerfið.

Kennsla fer fram í tölvuverum þar sem allir notendur sitja við eigin vél og geta unnið verkefni um leið og þau eru framkvæmd af kennara.

Unnið er eftir sérstakri aðferðarfræði sem reynst hefur með afbrigðum vel.

Reiknað er með að kennslan muni halda áfram þar til eftir að innleiðingu eplica vefumsjónarkerfisins lýkur hjá Stjórnarráði Íslands.








litli

Þitt álit

skiptir okkur máli

Ábending, hrós eða kvörtun? Láttu okkur vita, hvað þér finnst.
Athugið: ekki er nauðsynlegt að gefa upp nafn, síma né netfang.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica