Fréttir

Stjórnarráð Íslands innleiðir eplica vefumsjónarkerfið

8.10.2003

Stjórnarráð Íslands undirritaði nýlega samning við Hugsmiðjuna um innleiðingu eplica vefumsjónarkerfisins fyrir öll vefsvæði ráðuneytanna. Markmið verkefnisins er að einfalda umsjón vefsvæðanna og og auka aðgengi
blindra og sjónskertra að vefsvæði Stjórnarráðsins.

Við uppfærslu vefsins verður nýjum vinnuaðferðum beitt sem tryggja
fullkomið aðgengi blindra, fatlaðra og fólks með tæknilegar sérþarfir. Hver
síða er hönnuð og forrituð þannig að innihald hennar er aðgengilegt með
lágmarks búnaði og í vöfrum sem nýta talgervla. Engu að síður uppfyllir
útlit síðunnar ströngustu útlitskröfur í öllum nýjustu vöfrum auk þess sem
sérstaklega er hugað að því að framsetning á efni síðunnar sé prentvæn.

"Þessi samningur staðfestir að eplica vefumsjónarkerfið er vænlegur kostur
fyrir kröfuharða viðskiptavini. Um leið er sérstaklega ánægjuleg
viðurkenning á þeim vinnubrögðum sem við höfum verið að temja okkur
undanfarið ár. Þau fela í sér gríðarlegt hagræði við vefsmíði og rekstur
vefsvæða til langs tíma. Það er mikil tilhlökkun innan fyrirtækisins að
hefjast handa við verkefnið" segir Þorsteinn Yngvi Guðmundsson
markaðsstjóri Hugsmiðjunnar.

"Við bindum miklar vonir við eplica vefumsjónarkerfið og þá möguleika sem
það skapar okkur til að bæta þjónustu við notendur. Þá hafa aðgengismál
verið í brennidepli undanfarið og hér er stigið enn eitt skrefið í að bæta
aðgengi að vefjum ráðuneytanna" segir Sigurður Davíðsson vefstjóri hjá
forsætisráðuneytinu.

Nánari upplýsingar varðandi verkefnið veita Þorsteinn Yngvi Guðmundsson
markaðsstjóri Hugsmiðjunnar í síma 5 500 900 og Sigurður Davíðsson
vefstjóri stjórnarráðsvefsins í síma 545 8400.








litli

Þitt álit

skiptir okkur máli

Ábending, hrós eða kvörtun? Láttu okkur vita, hvað þér finnst.
Athugið: ekki er nauðsynlegt að gefa upp nafn, síma né netfang.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica