Samtök iðnaðarins semja um kaup á eplica vefumsjónarkerfinu
Endurnýjun vefsvæðanna SI.is og Iðan.is fer fram á næstunni.
Haraldur Dean Nelson upplýsingastjóri Samtaka iðnaðarins skrifaði í dag undir kaupsamning fyrir eplica EE vefumsjónarkerfið ásamt samning um framkvæmd endurnýjunar vefsvæða SI.
Í fyrsta áfanga samstarfsins verður lögð áhersla á að endurnýja vefina SI.is og Iðan.is.
„Það er sérstaklega gleðilegt að sjá Samtök iðnaðarins í hópi okkar viðskiptavina. SI gerðu einhverja þá ýtarlegustu úttekt á vefumsjónarkerfum sem við höfum séð. Það er þess vegna augljóst ánægja okkar með val þeirra er mikil. SI reka metnaðarfulla starfsemi og það verður áhugavert að stuðla að skilvirkari miðlun upplýsinga frá Samtökunum til félagsmanna og annara.“ segir Þorsteinn Yngvi Guðmundsson markaðsstjóri hjá Hugsmiðjunni.
Nánari upplýsingar um vefumsjónarkerfið eplica er hægt að fá með því að panta kynningu eða hafa samband við Hugsmiðjuna.

