Aðsókn að Skip.is eykst
Heimsóknarfjöldi á vefsvæðið á stöðugri uppleið
Á síðustu vikum hefur aðsókn á vefsvæði Skip.is verið á stöðugri uppleið. Sem dæmi má nefna að á milli viknanna 29/09-05/10 og 06/10-12/10 jókst meðal heimsóknarfjöldinn á dag um rúmlega 15%.
Þetta verður að teljast frábær árangur hjá Skip.is en miðillinn hefur svo sannarlega náð eyrum þeirra sem tengjast sjávarútveginum.
Nýlega keypti útgáfufyrirtæki Viðskiptablaðsins, Framtíðarsýn fyrirtækið og má ljóst vera að þessi þróun ýti undir að Skip.is verði enn frekar eflt í útgáfustarfsemi sinni.

