Fréttir

Fjölbrautaskólinn við Ármúla opnar nýjan og endurbættan vef

10.10.2003

Nýr vefur Fjölbrautaskólans við Ármúla hefur litið dagsins ljós. Um leið er hafinn undirbúningur fyrir að opna vefsvæði fyrir Framvegis sem er símenntunarhluti FÁ, Heilbrigðisskólann og Fjarnámsvef skólans.

Vefirnir munu veita nemendum og þeim sem áhugasamir eru um starfsemi skólans meiri upplýsingar um starfsemi skólans og þá þjónustu sem þar er að fá. Jafnframt er fjarnámsnemendum gert kleift að skrá sig í námskeið og greiða námskeiðsgjöld gegnum vefinn.

Haldið er utan um viðamikla námskrá skólans í sérstöku kerfi og var mikil vinna lögð í að gera viðhald hennar sem einfaldast úr garði.

Nánari upplýsingar um vefinn eru gjarnan veittar í síma 5 500 900 eða um póstfangi info@eplica.is.








litli

Þitt álit

skiptir okkur máli

Ábending, hrós eða kvörtun? Láttu okkur vita, hvað þér finnst.
Athugið: ekki er nauðsynlegt að gefa upp nafn, síma né netfang.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica