Nýr og endurbættur vefur Olíudreifingar í loftið
Olíudreifing opnaði í dag endurbætta útgáfu af vef sínum við hátíðlega athöfn á árshátíð starfsmanna. Nýji vefurinn keyrir í eplica vefumsjónarkerfinu.
Á vefnum er hægt að nálgast allar upplýsingar um Olíudreifingu og hvaða þjónustu fyrirtækið veitir. Jafnframt eru upplýsingar um afgreiðslustaði og einstaka starfsmenn félagsins.
Nýja vefinn geta starfsmenn ODR uppfært bæði í vinnunni og annars staðar í gegnum tölvu með internettengingu og vafra. eplica vefumsjónarkerfið býr yfir einföldu og þægilegu viðmóti sem allir geta lært á. Það gerir starfsmenn líka óháða því að uppfæra vefinn frá vinnustað.
Útlitshönnun var unnin af Reyni Pálssyni og settur upp af Hugsmiðjunni.
Um Olíudreifingu
Meginstarfsemi Olíudreifingar er dreifing og birgðahald á fljótandi eldsneyti fyrir eigendur sína Olíufélagið ehf og Olíuverslun Íslands h/f og hefur Olíudreifing yfirtekið starfsemi móðurfélaganna á þessum sviðum.
Félagið rekur einnig bifreiða- járnsmíða- dælu- og rafmagnsverkstæði . Verkstæðin sjá um viðhald og uppbyggingu á eignum félagsins auk þess að sjá um viðhald og uppbyggingu á tæknibúnaði þjónustustöðva móðurfélaganna.
Um Hugsmiðjuna
Hugsmiðjan ehf. er fyrirtækið á bak við eplica. Það sérhæfir sig í hverskonar hugbúnaðargerð og hefur síðan í jánúar 2001 smíðað hugbúnaðarkerfi sem nú eru markaðssett undir eplica nafninu. Markmið fyrirtækisins er að veita viðskiptavinum sínum bestu fáanlegu lausnir, aðstoða þau við hagræða í rekstri, bæta upplýsingaflæði til viðskiptavina og starfsmanna og hækka þjónustustig án aukins tilkostnaðar.
Smíði vefumsjónarkerfisins eplica hófst árið 2001 en sala þess hófst fyrir alvöru ári síðar. Á þeim tíma sem liðinn er hefur fjöldi ánægðra notenda vaxið hratt og er ástæða til að þakka öllum þeim fjölmörgu fyrirtækjum sem hafa treyst okkur fyrir vefmálum sínum.
Vefumsjónarkerfið eplica er fyrst og fremst efnismiðlunarkerfi sem getur birt gögn frá ýmsum upplýsingaveitum og miðlað þeim áfram til notenda með mismunandi tæknilegar þarfi.
Auk vefumsjónarkerfis hefur fyrirtækið nú hafið sölu á eplica Application Builder sem sem nýtist við gerð á veflægum hugbúnaði og getur stytt þróunartíma verulega og aukið gæði hans til muna.
Nánari upplýsingar um fyrirtækið eru veittar í síma 5500900 eða um netfangið info@eplica.is. Einnig er hægt að panta kynningu á vörum fyrirtækisins hér á vefnum.
Að öðrum kosti er hægt að kíkja víð:
Hugsmiðjan ehf. / Eplica ehf.
Skúlagötu 32-34
101 Reykjavík

