Fréttir

Samskip opnar tvo nýja vefi

14.10.2003

Samskip hafa uppfært heimasíðu sína, bæði hvað varðar útlit og innihald. Útlitið er hannað af auglýsingastofunni Argus.

Samskip opnaði tvo nýja vefi. Annar er Samskip.com sem haldið er úti af enskumælandi starfsmönnum fyrirtæksins á skrifstofum Samskipa í Rotterdam. Einn af kostum eplica vefumsjónarkerfisins er einmitt að hægt er að stilla hvaða tungumáli viðmót kerfisins skuli birta. Hinn vefurinn er Samskip.is sem ritstýrt er af íslenskum starfsmönnum og ætlaður er fyrir íslenskumælandi viðskiptavini.

Helstu nýjungar á íslenska vefnum eru t.d ýmsir skilmálar í flutningum s.s farmbréf Samskipa á íslensku og ensku, Incoterms 2000 og almennir þjónustuskilmálar SÍK. Einnig er að finna ýmsar hagnýtar upplýsingar s.s leiðbeiningar um tjónamál, siglingalög og skammstafanir í flutningum.

Allar siglingaleiðir Samskipa eru nú sýnilegar á kortum í Siglingaáætlun þar sem leið skipanna er rakin. Hægt er að smella á kort af áætlunarhöfnum Samskipa sem tengir þig við skrifstofu viðkomandi hafnar.
Einnig er nú að finna nákvæmar upplýsingar um skipaflota Samskipa.

Mun ítarlegri upplýsingar er að finna um þjónustu Samskipa í innflutningi og útflutningi ásamt upplýsingum um nýja Vörumiðstöð Samskipa sem mun rísa í október á næsta ári.

Einnig er nú að finna upplýsingar um fræðslustarf, gæðastarf, markaðsstarf, öryggismál og umhverfisstefnu Samskipa.

Nýtt myndasafn er á vefnum þar sem hægt er að nálgast myndir af starfsemi Samskipa. Úr myndabankanum má panta myndir í prentupplausn.

Um Samskip

Félagið var stofnað 1990 og tók þá við rekstri rótgróins sjóflutningafyrirtækis sem haldið hafði uppi farsælum millilandasiglingum í hálfa öld. Hjá Samskipum sameinast því þróttur og sóknarhugur nýrrar kynslóðar og áratuga reynsla ásamt þekkingu sem er dýrmæt á tímum örra breytinga.

Hlutverk Samskipa er að veita viðskiptavinum alþjóðlegar, eftirsóknarverðar og áreiðanlegar heildarlausnir á sviði flutninga og flutningatengdrar þjónustu sem koma til móts við metnaðarfullar kröfur viðskiptavina.

Yfir lönd yfir höf

Samskip hafa byggt upp heildarþjónustu á sviði flutninga, vörustýringar og vörumeðhöndlunar, innanlands sem utan. Félagið býður viðskiptavinum sínum flutninga um allan heim, geymslu á vörum á Íslandi eða erlendis og ráðgjöf vegna flutninga og birgða.  Viðskiptavinir, sem nýta sér heildræna þjónustu Samskipa, geta því einbeitt sér að eigin framleiðslu, sölu og þjónustu til viðskiptavina, en geta jafnframt fylgst með vörum sínum í flutningaferlinu eða geymslu með öflugu upplýsingakerfi

Um Hugsmiðjuna

Hugsmiðjan ehf. er fyrirtækið á bak við eplica. Það sérhæfir sig í hverskonar hugbúnaðargerð og hefur síðan í jánúar 2001 smíðað hugbúnaðarkerfi sem nú eru markaðssett undir eplica nafninu. Markmið fyrirtækisins er að veita viðskiptavinum sínum bestu fáanlegu lausnir, aðstoða þau við hagræða í rekstri, bæta upplýsingaflæði til viðskiptavina og starfsmanna og hækka þjónustustig án aukins tilkostnaðar.

Smíði vefumsjónarkerfisins eplica hófst árið 2001 en sala þess hófst fyrir alvöru ári síðar. Á þeim tíma sem liðinn er hefur fjöldi ánægðra notenda vaxið hratt og er ástæða til að þakka öllum þeim fjölmörgu fyrirtækjum sem hafa treyst okkur fyrir vefmálum sínum.

Vefumsjónarkerfið eplica er fyrst og fremst efnismiðlunarkerfi sem getur birt gögn frá ýmsum upplýsingaveitum og miðlað þeim áfram til notenda með mismunandi tæknilegar þarfi.

Auk vefumsjónarkerfis hefur fyrirtækið nú hafið sölu á eplica Application Builder sem sem nýtist við gerð á veflægum hugbúnaði og getur stytt þróunartíma verulega og aukið gæði hans til muna.

Nánari upplýsingar um fyrirtækið eru veittar í síma  5500900 eða um netfangið info@eplica.is. Einnig er hægt að panta kynningu á vörum fyrirtækisins hér á vefnum.

Að öðrum kosti er hægt að kíkja víð:

Hugsmiðjan ehf
Skúlagötu 32-34
Sími 5 500 900








litli

Þitt álit

skiptir okkur máli

Ábending, hrós eða kvörtun? Láttu okkur vita, hvað þér finnst.
Athugið: ekki er nauðsynlegt að gefa upp nafn, síma né netfang.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica