Fréttir

Björn.is valinn besti einstaklingsvefurinn

Á árlegri vefverðlaunahátíð fyrirtækisins Vefsýnar

30.10.2003

Við smíði vefsins var mikið lagt upp úr því að gera vefinn sem aðgengilegastan fyrir alla. Þannig er hann fullkomlega aðgengilegur blindum og sjónskertum sem nota hljóðvafra, auk þess sem hann er aðgengilegur á ýmsum jaðartækjum eins og farsímum og lófatölvum.

Gestir á heimasíðu Björns geta eins og áður fengið sendar tilkynningar í tölvupósti um nýtt efni en auk þess er boðið upp á þá nýjung að hægt verður að nálgast tilkynningar um nýjar greinar á svokölluðu RSS formi. Notkun RSS skráarsniðsins býður upp á einstaklega skemmtilega eiginleika í efnismiðlun. Þannig getur Björn skrifað greinar og birt á eigin vefsvæði en samtímis getur greinin birtst á öðrum vefsíðum sem nýta sér RSS efnisveituna.

En þrátt fyrir góðar tæknilegar lausnir er það auðvitað Björn sjálfur og pistlar hans sem lesendur kunna að meta. Björn hefur eins og alþjóð veit verið einna ötulastur stjórnmálamanna við notkun netsins. Vefsíða hans www.bjorn.is er líklega sú vefsíða stjórnmálamanns sem hvað flestar heimsóknir fær auk þess sem á annað þúsund fá reglulega sendar greinar og pistla eftir Björn. Björn er Dóms- og kirkjumálaráðherra auk þess að sitja í Borgarstjórn Reykjavíkur.

Hugsmiðjan óskar Birni innilega til hamingju með þennan frábæra árangur.

 








litli

Þitt álit

skiptir okkur máli

Ábending, hrós eða kvörtun? Láttu okkur vita, hvað þér finnst.
Athugið: ekki er nauðsynlegt að gefa upp nafn, síma né netfang.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica