Nýr vefur Kvikmyndamiðstöðvar Íslands opnaður.
Hin nýja Kvikmyndamiðstöð Íslands hefur sett í loftið nýjan og endurbættan vef sinn.
Nýji vefurinn inniheldur mikið af upplýsingum um kvikmyndagerð á Íslandi. Hann veitir sérstaka þjónustu við erlenda aðila sem hafa hug á að nýta sér þau skattalegu fríðindi sem íslensk stjórnvöld veita útlendingum sem stunda kvikmyndagerð á Íslandi.
Einnig eru þar veittar upplýsingar um umsóknarferli styrkja til kvikmyndagerðar ásamt því sem fjallað er um þau verkefni sem hlotið hafa styrk frá Kvikmyndasjóði.
Hægt er að nálgast upplýsingar um íslenskar myndir sem eru í sýningu á erlendum kvikmyndahátíðum.
Vefnum er ætlað að verða miðstöð upplýsinga um íslenska kvikmyndagerð og kvikmyndagerð á Íslandi.
Ritstjóri vefsins er að góðu kunnur, Ásgrímur Sverrisson kvikmyndagerða- og fjölmiðlamaður.
Hægt er að nálgast íslenska útgáfu vefisins á slóðinni www.kvikmyndamidstod.is og enska útgáfu á slóðinni www.icelandicfilmcentre.is.
Um Kvikmyndastofnun Íslands
Kvikmyndamiðstöð Íslands tók til starfa samkvæmt lögum 1. janúar 2003.
Kvikmyndamiðstöðin tekur yfir öll verkefni Kvikmyndasjóðs, að undanskildum rekstri Kvikmyndasafnsins, en breytt fyrirkomulag miðar að því að auka skilvirkni starfseminnar, ekki síst hvað varðar meðferð umsókna og úthlutun styrkja til undirbúnings, framleiðslu og/eða dreifingar íslenskra kvikmynda. Í stað þess að sérstök nefnd fjalli um og tilkynni niðurstöðu styrkveitinga einu sinni á ári verður hægt að leita hvenær sem er til Kvikmyndamiðstöðvarinnar með erindi sín og mun forstöðumaður hennar síðan taka endanlega ákvörðun um veitingu fjárstuðnings í samræmi við skilyrði þeirrar reglugerðar sem liggur til grundvallar slíkum úthlutunum.
Kvikmyndasjóður starfar á vegum Kvikmyndamiðstöðvar Íslands.
Eins og áður fer menntamálaráðherra með yfirstjórn kvikmyndamála en hefur nú sér til fulltingis sjö manna kvikmyndaráð sem ætlað er að veita stjórnvöldum ráðgjöf og gera tillögur um stefnu og markmið opinberra aðgerða á sviði kvikmyndalistar.
Um Hugsmiðjuna
Hugsmiðjan ehf. er fyrirtækið á bak við eplica. Það sérhæfir sig í hverskonar hugbúnaðargerð og hefur síðan í jánúar 2001 smíðað hugbúnaðarkerfi sem nú eru markaðssett undir eplica nafninu. Markmið fyrirtækisins er að veita viðskiptavinum sínum bestu fáanlegu lausnir, aðstoða þau við hagræða í rekstri, bæta upplýsingaflæði til viðskiptavina og starfsmanna og hækka þjónustustig án aukins tilkostnaðar.
Smíði vefumsjónarkerfisins eplica hófst árið 2001 en sala þess hófst fyrir alvöru ári síðar. Á þeim tíma sem liðinn er hefur fjöldi ánægðra notenda vaxið hratt og er ástæða til að þakka öllum þeim fjölmörgu fyrirtækjum sem hafa treyst okkur fyrir vefmálum sínum.
Vefumsjónarkerfið eplica er fyrst og fremst efnismiðlunarkerfi sem getur birt gögn frá ýmsum upplýsingaveitum og miðlað þeim áfram til notenda með mismunandi tæknilegar þarfi.
Auk vefumsjónarkerfis hefur fyrirtækið nú hafið sölu á eplica Application Builder sem sem nýtist við gerð á veflægum hugbúnaði og getur stytt þróunartíma verulega og aukið gæði hans til muna.
Nánari upplýsingar um fyrirtækið eru veittar í síma 5500900 eða um netfangið info@eplica.is. Einnig er hægt að panta kynningu á vörum fyrirtækisins hér á vefnum.
Að öðrum kosti er hægt að kíkja víð:
Hugsmiðjan ehf. / Eplica ehf.
Skúlagötu 32-34
101 Reykjavík

