Hugsmiðjan hlýtur styrk til að efla aðgengismál fyrir lesblinda á netinu
Félagsmálaráðuneytið og Evrópuár fatlaðra veittu Hugsmiðjunni í dag styrk til að smíða nýja lausn sem gerir lesblindum auðveldara að lesa efni á vefnum.
Hugsmiðjan hefur án efa leitt þróun í aðgengismálum blindra og sjónskertra á netinu hér á Íslandi. Fyrirtækið hefur síðan í október 2002 unnið alla vefi sína þannig að þeir séu fullkomlega aðgengilegir fyrir blinda og sjónskerta auk þess sem lögð hefur verið áhersla á að þeir sem hafi tæknilegar sérþarfir geti nýtt sér vefina.
Það má þannig segja að það að finna leið til að hjálpa lesblindum að lesa vefina sé eðlilegt skref í framþróuninni. Það er að auki sérstakt ánægjuefni að viðkomandi lausn mun nýtast sjónskertum fyllilega til að stækka letur og aðlaga vefsíður að sínum þörfum.
Áherslur ráðuneytisins eru að veita styrki til verkefna á sviði þróunar og nýsköpunar í þjónustu við fatlaða. Einnig eru veittir styrkir til verkefna sem eru að veita fötluðum þjónustu sem þykir framúrskarandi og til eftirbreytni fyrir aðra.
Það eru Félagsmálaráðuneytið, Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins (The European Commission) og Framkvæmdasjóður fatlaðra sem standa að styrkveitingunni í tilefni af Evrópuári fatlaðra.
Um 50 umsækjendur lögðu fram styrkbeiðnir upp á 109 milljónir. Upphaflega hafði verið gert ráð fyrir að styrkupphæðir yrðu um það bil 2,2 milljónir en eftir að í ljós kom hversu mikil ásókn var í styrkina ákvað félagsmálaráðuneytið að auka upphæðina í ríflega 5 milljónir.

