Fréttir

Frábær ný þjónusta lítur dagsins ljós

Einfaldari verður efnisinnsetning varla

26.11.2003

Alger nýjung í viðhaldi vefsvæða! Vefnotendur fá það hagræði sem hlýst af notkun eplica vefumsjónarkerfisins en geta notað kunnuglegt umhverfi Microsoft® Word ritvinnsluforritsins til að skrifa texta og vista hann beint á vefinn sinn.

Frá upphafi hefur verið lögð mikil áhersla á að gera efnisinnsetninguna einfalda og þægilega í eplica. Með því að bjóða upp á tengingu á milli MS-Word og eplica er komið til móts við þarfir þeirra notenda sem alla að jafnan koma ekki að vefumsjón í stærri fyrirtækjum og stofnunum. Þeim gefst nú tækifæri til að taka þátt í uppbyggingu vefsvæða á einfaldan og skilvirkan hátt, án kröfu um að þeir bæti við sig nokkurri þekkingu.

Eiginleikar

  • Útbúið ný skjöl í MS-Word vistuð í eplica og birt á vef.
  • Opnað skjöl af vef í MS-Word, þeim breytt og þau vistuð aftur á vef.
  • Myndir fylgja sjálfkrafa með úr MS-Word skjölunum og inn á vefinn.
  • Hægt er að taka skjöl úr birtingu eða breyta birtingu á einfaldan hátt frá MS-Word viðmóti.
  • eplica geymir útgáfusögu allra skjala sem skráð eru í kerfinu.
  • Hægt er að útbúa snið (template) í MS-Word til að tryggja að efni komist ávalt rétt til skila.
  • Allt HTML sem kemur úr Word er hreinsað og XHTML samhæft.

eplica MS-Word viðbótin er fyrsta varan í eplica línunni sem nýtir sér nýja vefþjónustugátt (XML-RPC) sem nú er fáanleg fyrir allar útgáfur af eplica. Hugsmiðjan vinnur nú í samvinnu við hugbúnaðarhúsið HEX að þróun annara spennandi lausna sem einnig nýta sér þessa nýju vefþjónustugátt. 

Sjón er sögu ríkari. Hafðu samband og fáðu að sjá hvernig lausnin virkar.








litli

Þitt álit

skiptir okkur máli

Ábending, hrós eða kvörtun? Láttu okkur vita, hvað þér finnst.
Athugið: ekki er nauðsynlegt að gefa upp nafn, síma né netfang.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica