Endurnýtanleiki eininga lækkar kostnað við vefsmíði
Það er þekkt staðreynd að endurnýtanleiki forritunarkóða og virknieininga gerbreytir kostnaði við þróun nýrra hugbúnaðarlausna.
Ýmsir rannsóknaraðilar hafa gert ýtarlegan samanburð á kostnaði við þróun hugbúnaðar sem skrifaður er frá grunni og svo hinum sem endurnýtir kóða eða einingar sem áður hefur verið skrifað. Endurnýtingin hefur sýnt sig skila sparnaði upp á að minnsta kosti 15%. Staðreyndin er hins vegar sú að með endurnýtingu virknieininga má spara umtalsvert meira við framleiðslu veflausna.
Það var þess vegna grunnforsenda við hönnun eplica kerfisins að endurnýting virknieininga yrði alger. Það markmið hefur náðst og er nú til stórt lausnasafn sem nýtist mismunandi vefsvæðum til fullnustu án þess að útlit þeirra skarist nokkuð.
Frá því í október 2002 hefur Hugsmiðjan einnig endurnýtt HTML kóða á bilinu 85-95% milli vefsvæða. Þetta hefur flýtt þróun vefsvæða og lækkað kostnað við gerð þeirra umtalsvert án þess að það komi niður á sveigjanleika í útliti.
Hugsmiðjan hefur frá upphafi leitast eftir því að bjóða besta hugbúnaðinn á sem hagkvæmustum verðum. Fyrirtækið hefur stóran hóp viðskiptavina sem borið geta því vitni að það hefur tekist með ágætum.
Ef þú hefur áhuga á að meta hver kostnaður þinn við að uppfæra vefumsjónarkerfi þitt í eplica er, skaltu endilega hafa samband.

