Fréttir

Í tilefni af nýrri útgáfu af eplica

Langþráðum áfanga náð

29.11.2003

Nú er loks komið að þeim tímamótum að við getum boðið öllum aðgang að nýrri útgáfu eplica vefumsjónarkerfisins en við höfum beðið þessarar nýju útgáfu með nokkurri óþreyju.

Nýja útgáfan byggir á sama kjarnakerfi og eldri útgáfur en ýmsar nýjar og öflugar þjónustur hafa litið dagsins ljós auk þess sem vefritill kerfisins hefur verið endurskrifaður. Fjöldi smærri breytinga hafa átt sér stað á viðmóti kerfisins en þess hefur verið gætt að þær krefjist ekki endurmenntunar notenda heldur auki fyrst og fremst notagildi og vinnusparnað. Við höfum einnig bætt við viðmótum við önnur forrit og kerfi, t.a.m. geta menn nú sent inn greinar beint úr Microsoft Word og fleiri nýjungar eru á döfinni sem verða kynntar á næstu dögum og vikum.

Traustar undirstöður, lykill að áframhaldandi árangri

Á sama tíma og flestir samkeppnisaðilar okkar eru að endurhanna og endurskrifa sín kjarnakerfi frá grunni til þess að vera samkeppnishæfir á þessum krefjandi markaði er það mjög þægileg staðreynd að eplica er öflugasta, íslenska, vefumsjónarkerfið og að við eigum enn langt í land með að fullnýta þá möguleika sem búa í kjarnakerfi eplica. Góð hönnun, rétt högun og val á þróunarumhverfi gerir það að verkum að við getum áfram einbeitt okkur að því að bæta notendaviðmót, skrifa nýjar kerfisþjónustur og auka sjálfvirkni á meðan samkeppnisaðilar okkar eru uppteknir við að endurskrifa kerfi sín frá grunni.

Bætti aðgengi fatlaðra og aukið hagræði fylgdu breyttum vinnubrögðum

Fyrir rúmu ári síðan tókum við hjá Hugsmiðjunni upp nýja starfhættti sem snúa að því hvernig vefun er háttað. Þessi breyting hefur verið heillaspor sem hefur gert okkur og viðskiptavinum okkar kleift að endurnýta mun stærri þátt af vinnu við vefsmíði en hingað til hefur verið mögulegt. Þessi nýja útgáfa af eplica styður enn betur við þessa högun.

Það kom okkur skemmtilega að óvart hversu miklu betra aðgengi blindar og sjónskertra er að þeim vefsvæðum sem unnin hafa verið með þessum hætti, miðað við aðgengi að vefsvæðum sem unnin hafa verið með “hefðbundnum” hætti. Rétt er að þakka þann hlýhug sem samfélag blindra og sjónskertra á Íslandi hefur sýnt okkur og þá sérstaklega þá viðurkenningu sem fólgin er í því að fá tækifæri til að gera nýtt vefsvæði fyrir Blindrafélagið og að hljóta nú nýverið styrk frá Evrópuári fatlaðra og Félagsmálaráðuneytinu til útfærslu á hugmyndum okkar á því hvernig bæta má aðgengi lesblindra og sjóndapra enn frekar.

Uppfærslur í takt við jólalögin

Fyrsta útgáfa eplica 1.4, eplica 1.4.0, hefur, í tilraunaskyni, verið keyrandi um skeið á völdum vefsvæðum. Sá stöðuleiki sem býr í því að vera með gott kjarnakerfi gerir okkur nú kleift að uppfæra eldri kerfi í þessa nýju útgáfu á einfaldan og fljótlegan hátt. Um aðventuna hefst vinna við uppfærslu vefsvæða í eplica 1.4.1. og vil ég nota þetta tækifæri til að þakka þeim aðilum sem hafa komið að því að prófa eplica 1.4 sérstaklega fyrir.

Upplýsingar um þær viðbætur sem í boði eru í nýju útgáfunni má nálgast hér.

-Stefán Baxter, framkvæmdastjóri Hugsmiðjunnar ehf.








litli

Þitt álit

skiptir okkur máli

Ábending, hrós eða kvörtun? Láttu okkur vita, hvað þér finnst.
Athugið: ekki er nauðsynlegt að gefa upp nafn, síma né netfang.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica