Fréttir

Pegasus / Panarctica velur Eplica vefumsjónarkerfið fyrir nýjan vef sinn

5.12.2003

Kvikmyndaframleiðslufyrirtækið Pegasus / Panarctica gekk nýlega til samninga við Hugsmiðjuna um smíði á nýjum vef fyrirtækisins.

Pegasus / PanArctica annast framleiðslu kvikmynda og sjónvarpsefnis fyrir innlendan markað. Auk þess aðstoðar fyrirtækið erlenda aðila sem kjósa ísland sem viðfangsefni í auglýsingar og kvikmyndir. Til að bregðast við auknum áhuga á Íslandi sem staðsetningu fyrir stærri viðburði hefur viðburðastjórn verið bætt við þjónustuframboðið.

Við kynningu og samskipti við erlenda sem innlenda aðila er því mikilvægt að halda úti öflugu vefsvæði þar sem núverandi og væntanlegir viðskiptavinir geta skoðað það sem er í boði ásamt því að gera sér grein fyrir þeim verkefnum sem þegar hafa verið leyst hvort sem það er auglýsingaframleiðsla eða viðburðastjórn.

Á vegum fyrirtækisins starfa nokkrir auglýsingaleikstjórar sem hafa hlotið ýmsar viðurkenningar fyrir störf sín, þar á meðal Reynir Lyngdal sem vakti athygli á auglýsingahátíðinni í Cannes árið 2003 og leikstýrði í boði leikstjórans Vim Wenders stuttmynd sem sýnd var í beinni útsendingu frá Evrópsku kvikmyndaverðlaununum.

„Það er okkar von að nýji vefurinn muni styðja áframhaldandi sókn fyrirtækisins á erlenda markaði með því að auðvelda aðgang að upplýsingum og einfalda samskipti. Við munum að minnsta kosti gera það sem í okkar valdi stendur til þess", segir Þorsteinn Yngvi Guðmundsson markaðsstjóri Hugsmiðjunnar.

Um Pegasus

Pegasus framleiðir kvikmyndir, stuttmyndir, sjónvarpsþætti og auglýsingar ásamt því að annast framleiðslu og stjórn viðburða.

Fyrirtækið veitir auk þess erlendum fyrirtækjum sem vilja stunda kvikmyndatöku á Íslandi og Grænlandi framleiðsluþjónustu. Þá er ýmist um að ræða að finna réttu staðsetninguna til myndatökunnar, leigu á tækjum eða hvað annað sem snýr að framleiðsluferlinu.

Fyrirtækið var stofnað árið 1992 og meðal starfsmanna þess er langur starfsaldur í viðburðastjórn og framleiðslu fyrir bæði ljósvakamiðla og hvíta tjaldið.

Um Hugsmiðjuna

Merki eplicaHugsmiðjan ehf. er fyrirtækið á bak við eplica. Það sérhæfir sig í hverskonar hugbúnaðargerð og hefur síðan í jánúar 2001 smíðað hugbúnaðarkerfi sem nú eru markaðssett undir eplica nafninu. Markmið fyrirtækisins er að veita viðskiptavinum sínum bestu fáanlegu lausnir, aðstoða þau við hagræða í rekstri, bæta upplýsingaflæði til viðskiptavina og starfsmanna og hækka þjónustustig án aukins tilkostnaðar.

Smíði vefumsjónarkerfisins eplica hófst árið 2001 en sala þess hófst fyrir alvöru ári síðar. Á þeim tíma sem liðinn er hefur fjöldi ánægðra notenda vaxið hratt og er ástæða til að þakka öllum þeim fjölmörgu fyrirtækjum sem hafa treyst okkur fyrir vefmálum sínum.

Vefumsjónarkerfið eplica er fyrst og fremst efnismiðlunarkerfi sem getur birt gögn frá ýmsum upplýsingaveitum og miðlað þeim áfram til notenda með mismunandi tæknilegar þarfi.

Auk vefumsjónarkerfis hefur fyrirtækið nú hafið sölu á eplica Application Builder sem sem nýtist við gerð á veflægum hugbúnaði og getur stytt þróunartíma verulega og aukið gæði hans til muna.

Nánari upplýsingar um fyrirtækið eru veittar í síma  5500900 eða um netfangið info@eplica.is. Einnig er hægt að panta kynningu á vörum fyrirtækisins hér á vefnum.

Að öðrum kosti er hægt að kíkja víð:

Hugsmiðjan ehf. / Eplica ehf.
Skúlagötu 32-34
101 Reykjavík

 

 








litli
Þetta vefsvæði byggir á Eplica