Fréttir

Uppfærðu vefinn þinn úr síma eða tölvupósti

Símblogg tengist Eplica

8.12.2003

Eitt af helstu vandamálum þess að viðhalda lifandi og gagnvirkum vef er ekki tæknilegs eðlis heldur snýst það um verklag og vinnubrögð. Það hefur oft reynst dýrt að þjálfa alla þá sem luma á efni fyrir vefi fyrirtækisins í notkun vefumsjónarkerfis þess, jafnvel þótt það kerfi sé þægilegt og einfalt í notkun.

Með tengingu Eplica vefumsjónarkerfisins við Símblogg er stigið stórt skref í áttina að lausn þessa vandamáls. Tengingin gerir það að verkum að hægt er að leyfa tilteknum notendum að senda inn texta og myndir beint úr tölvupósti á vefinn. Efnislína tölvupóstsins verður þá að fyrirsögn, textinn að meginmáli og mynd sem fylgir að myndskreytingu. Skilgreint stílsnið vefsins tryggir svo að útlitið sé í lagi.

Að setja inn fréttir og tilkynningar verður því jafn auðvelt í notkun og að senda téða frétt í tölvupósti, sem minnkar verulega álag á þá sem um vefina sjá. Menn geta síðan, ef þeir svo kjósa, notað ritstjórnartól Eplica til að samþykkja efni til birtingar.

Til viðbótar er hægt að senda inn efni með myndskilaboðum úr myndavélasímum, svo hægt er að senda inn lifandi efni frá viðburðum um leið og þeir gerast, auk þess sem hægt er að senda inn tal og tóna með því einfaldlega að hringja í tiltekið númer og lesa þar inn efnið.

„Með því að tengja saman Símblogg frá Hex og Eplica frá Hugsmiðjunni er skrefið stigið til fulls“, segir Þórarinn Stefánsson, framkvæmdastjóri Hex. "Við höfum þegar tengt tungutæknilausnir Hex við Eplica vefi, þannig að efni sem þar er geymt er gert aðgengilegt í gegn um síma og nú erum við að tryggja það að efni geti flætt í hina áttina."

Merki eplica„Þetta er mjög góð leið til að auka breidd efnis á vefjum fyrirtækja og stofnana“ segir Stefán Baxter, framkvæmdastjóri Hugsmiðjunnar. „Besta leiðin til að halda úti lifandi og áhugaverðum vef er að fá fleiri að efnisskrifum. Þröskuldurinn hefur að jafnaði verið að fólk þarf að læra á ný kerfi til að gera það. Þessi viðbót er enn ein leið okkar til að lækka þann þröskuld.“








litli
Þetta vefsvæði byggir á Eplica