Fréttir

Ný vefsíða Þjóðminjasafnsins opnuð

Vefurinn var unninn af Origo en byggir á Eplica vefumsjónarkerfinu.

6.12.2003

Nikulásarmessa þann 6. desember er merkisdagur í sögu Þjóðminjasafnsins. Fyrrverandi þjóðminjavörður, Kristján Eldjárn, átti afmæli þann dag og hefð er fyrir því að jólasýning safnsins sé opnuð á Nikulásarmessu.

Í ár verður 140 afmælissýning Þjóðminjasafnsins opnuð í risi Þjóðmenningarhússins á þessum degi og við sama tækifæri lýsir menntamálaráðherra nýja vefsíðu safnsins opna.  Við hönnun vefsíðunnar var haft að leiðarljósi að framsetning öll yrði skýr og einföld þannig að fljótlegt verði fyrir gesti að nálgast þær upplýsingar sem þá vanhagar um.

Vinna við nýju vefsíðuna hófst snemma á árinu 2003. Fyrirtækið Sjá viðmótsprófanir veitti safninu ráðgjöf í undirbúningsferlinu og var tæknileg útfærsla í höndum tölvufyrirtækisins Origo. Ennfremur sá Origo um hönnun vefjarins í samráði við auglýsingastofuna Fíton og voru textaskrif í höndum sérfræðinga safnsins. Vefurinn notast við eplica vefumsjónarkerfið frá Hugsmiðjunni.

Starfsemi safnsins er viðamikil eins og flokkar veftrésins bera með sér. Vinstra megin á síðunni eru efnisflokkar sem kynna ytra starf Þjóðminjasafnsins, s.s sýningar og fræðslu. Hægra megin eru efnisflokkar sem kynna innra starf Þjóðminjasafnsins, m.a. rannsóknir sem stundaðar eru á safninu en þær eru afar fyrirferðamikill þáttur í starfseminni.

Þjóðminjasafnið vonar að tilurð þessarar nýju vefsíðu bregði að einhverju leyti birtu á það mikla starf sem hér er unnið.  Með nýju vefsíðunni breytist einnig netfang safnsins úr www.natmus.is í www.thjodminjasafn.is. Eldra netfangið verður þó ennþá virkt til hægðarauka fyrir erlenda gesti.

Af vef þjóðminjasafnsins, birt með góðfúslegu leyfi.








litli

Þitt álit

skiptir okkur máli

Ábending, hrós eða kvörtun? Láttu okkur vita, hvað þér finnst.
Athugið: ekki er nauðsynlegt að gefa upp nafn, síma né netfang.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica