Hugsmiðjan og CAOZ hefja nánara samstarf
CAOZ er það fyrirtæki stendur hvað fremst í smíði Flashlausna á Íslandi og það er okkur því sérstök ánægja að fá að njóta kunnáttu þeirra til að bjóða nýjar og skemmtilegar þjónustur fyrir Eplica vefumsjónarkerfið.
Nýju einingarnar tengjast beint inn í stjórnkerfi Eplica. Þannig geta notendur þá stillt framsetningu efnisins sem flasheiningarnar eru að birta rétt eins og hægt er með annað efni sem birt er í Eplica kerfinu.
Einingarnar verður hægt að nota til að birta ýmiskonar efni sem nú er hægt að birta með hefðbundnum hætti á fjölbreyttari og gagnvirkari hátt en hefðbundin veftækni býður upp á.
CAOZ
CAOZ er ein af áhugaverðari hönnunarstofum landsins. Fyrirtækið hefur frá stofnun einbeitt sér að stafrænni hönnun með góðum árangri. Auk þess að hanna áhugaverða vefi, hefur fyrirtækið hannað viðmót á hugbúnað. Einn stærsti sigur þess er tölvuteiknimyndin Litla lirfan ljóta sem hlotið hefur góðar viðtökur hvar sem hún hefur verið sýnd. Fyrirtækið hefur nú hafið framleiðslu á myndinni Anna and the Moods.
Hugsmiðjan
Hugsmiðjan ehf. er fyrirtækið á bak við eplica. Það sérhæfir sig í hverskonar hugbúnaðargerð og hefur síðan í janúar 2001 smíðað hugbúnaðarkerfi sem nú eru markaðssett undir eplica nafninu. Markmið fyrirtækisins er að veita viðskiptavinum sínum bestu fáanlegu lausnir, aðstoða þau við hagræða í rekstri, bæta upplýsingaflæði til viðskiptavina og starfsmanna og hækka þjónustustig án aukins tilkostnaðar.
Smíði vefumsjónarkerfisins eplica hófst árið 2001 en sala þess hófst fyrir alvöru ári síðar. Á þeim tíma sem liðinn er hefur fjöldi ánægðra notenda vaxið hratt og er ástæða til að þakka öllum þeim fjölmörgu fyrirtækjum sem hafa treyst okkur fyrir vefmálum sínum.
Án öflugra samstarfsaðila væru við heldur ekki í þeim sporum sem við erum í dag og viljum við vekja sérstaka athygli á þeirri úrvalsþjónustu sem þau veita.
Helstu vörur
Vefumsjónarkerfið eplica er fyrst og fremst efnismiðlunarkerfi sem getur birt gögn frá ýmsum upplýsingaveitum og miðlað þeim áfram til notenda með mismunandi tæknilegar þarfi.
Auk vefumsjónarkerfis hefur fyrirtækið nú hafið sölu á eplica Application Builder sem sem nýtist við gerð á veflægum hugbúnaði og getur stytt þróunartíma verulega og aukið gæði hans til muna.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar um fyrirtækið eru veittar í síma 5500900 eða um netfangið info@eplica.is. Einnig er hægt að panta kynningu á vörum fyrirtækisins hér á vefnum.
Að öðrum kosti er hægt að kíkja víð:
Hugsmiðjan ehf.
Skúlagötu 32-34
101 Reykjavík
