Fréttir

Mars var einstakur á Akureyri.is

3.4.2004

Akureyri.is heldur áfram að slá ný met og nýliðinn marsmánuður var einstakur á allan hátt, ekki bara veðurfarslega. Gestir voru 12.616 og flettingar 115.621!

Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd þá hafa flettingar á síðunni aukist statt og stöðugt frá því í júní árið 2002 og gestafjöldinn mjakast hægt og bítandi upp á við. Það þýðir í raun að þeir sem koma inn á síðuna skoða sífellt meira og forvitnast þannig um allt mögulegt sem bæjarlífið hefur upp á að bjóða. Síðasti mánuður sker sig algjörlega úr hvað flettingarnar varðar og samkvæmt upplýsingum frá Samræmdri vefmælingu voru vinsælustu síðurnar í mánuðinum fréttir, laus störf (auglýsingar um sumarstörf hafa þar rík áhrif), hótel og gististaðir, nýjustu fundargerðirnar, 12 ástæður til að búa á Akureyri og mynd vikunnar.

Vefsvæði Akureyrarbæjar byggir á Eplica og fékk vefurinn nýlega uppfærslu í nýjustu útgáfu vefumsjónarkerfisins. Á sama tíma var vefurinn gerður aðgengilegur blindum og sjónskertum.

Af vef Akureyrarbæjar, með minniháttar breytingum, birt með góðfúslegu leyfi.








litli

Þitt álit

skiptir okkur máli

Ábending, hrós eða kvörtun? Láttu okkur vita, hvað þér finnst.
Athugið: ekki er nauðsynlegt að gefa upp nafn, síma né netfang.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica