Fréttir

Indælis leið til að hefja páskahátíðina

íslandsdeild Amnesty International opnar nýja vefsíðu

8.4.2004

Í gær komu starfsmenn Íslandsdeildar Amnesty International færandi hendi með kökur og gjafir til að fagna opnun á nýrri vefsíðu samtakanna.

Það var kátt á hjalla þegar starfsmenn Amnesty komu í heimsókn til að fagna opnuninni enda hafa samtökin lengi leitað leiða til að gera vefsíðu sína betur úr garði. Þegar leitað var til Hugsmiðjunnar um að styðja verkefnið þótti það sjálfsagður hlutur að leggja Amnesty lið, enda hefur Hugsmiðjan markað sér stefnu um að starfa sem ábyrgur þjóðfélagsþegn.

Auk veitinga gaf Amnesty starfsmönnum Hugsmiðjunnar, barmmerkið Vonarljósið ásamt ljóðabókinni Úr ríki samviskunnar.

Vefsíða Amnesty er aðgengileg blindum og sjónskertum jafnt og öðrum sem hafa einhverjar tæknilegar sérþarfir.

Ánægjulegulegustu fréttirnar eru auðvitað að heimasíðan nýtist samtökunum vel, því eins og Jóhanna K. Eyjólfsdóttir framkvæmdastjóri Íslandsdeildarinnar sagði þá hafa daglega bæst við einn til tveir meðlimir í samtökin í gegnum skráningu á vefsíðunni alveg síðan hún opnaði fyrir um mánuði síðan.

Hugsmiðjan þakkar kærlega fyrir sig og óskar Íslandsdeild Amnesty International innilega til hamingju með nýja vefinn.








litli

Þitt álit

skiptir okkur máli

Ábending, hrós eða kvörtun? Láttu okkur vita, hvað þér finnst.
Athugið: ekki er nauðsynlegt að gefa upp nafn, síma né netfang.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica