Pegasus-Panarctica opnar nýja og glæsilega heimasíðu
Pegasus - Panarctica skipar hópur reynslumikilla sérfræðinga og býr fyrirtækið að yfir 30 ára starfsreynslu við kvikmyndagerð.
En það er þó ekki allt og sumt, því auk ofangreinds hefur fyrirtækið unnið hörðum höndum að því að byggja upp þjónustu við atburðastjórnun með góðum árangri.
Á vefnum eru lokuð svæði sem fyrirtækið getur notað til að birta viðskiptavinum sínum upplýsingar sem eru aðeins þeim aðgengileg, til dæmis geta þeir sem hafa hug á nýta framleiðsluþjónustuna fengið myndir tökustað til að átta sig betur á umhverfinu.

Vefurinn var hannaður af Hugsmiðjunni en byggir eins og fyrr segir á Eplica vefumsjónarkerfinu. Hugsmiðjan setti vefinn saman og er hann eins og aðrir vefir sem Hugsmiðjan vinnur aðgengilegur blindum og sjónskertum.
Um Pegasus
Pegasus framleiðir kvikmyndir, stuttmyndir, sjónvarpsþætti og auglýsingar ásamt því að annast framleiðslu og stjórn viðburða.
Fyrirtækið veitir auk þess erlendum fyrirtækjum sem vilja stunda kvikmyndatöku á Íslandi og Grænlandi framleiðsluþjónustu. Þá er ýmist um að ræða að finna réttu staðsetninguna til myndatökunnar, leigu á tækjum eða hvað annað sem snýr að framleiðsluferlinu.
Fyrirtækið var stofnað árið 1992 og meðal starfsmanna þess er langur starfsaldur í viðburðastjórn og framleiðslu fyrir bæði ljósvakamiðla og hvíta tjaldið.
Um Hugsmiðjuna
Hugsmiðjan ehf. er fyrirtækið á bak við eplica. Það sérhæfir sig í hverskonar hugbúnaðargerð og hefur síðan í jánúar 2001 smíðað hugbúnaðarkerfi sem nú eru markaðssett undir eplica nafninu. Markmið fyrirtækisins er að veita viðskiptavinum sínum bestu fáanlegu lausnir, aðstoða þau við hagræða í rekstri, bæta upplýsingaflæði til viðskiptavina og starfsmanna og hækka þjónustustig án aukins tilkostnaðar.
Smíði vefumsjónarkerfisins eplica hófst árið 2001 en sala þess hófst fyrir alvöru ári síðar. Á þeim tíma sem liðinn er hefur fjöldi ánægðra notenda vaxið hratt og er ástæða til að þakka öllum þeim fjölmörgu fyrirtækjum sem hafa treyst okkur fyrir vefmálum sínum.
Vefumsjónarkerfið eplica er fyrst og fremst efnismiðlunarkerfi sem getur birt gögn frá ýmsum upplýsingaveitum og miðlað þeim áfram til notenda með mismunandi tæknilegar þarfi.
Auk vefumsjónarkerfis hefur fyrirtækið nú hafið sölu á eplica Application Builder sem sem nýtist við gerð á veflægum hugbúnaði og getur stytt þróunartíma verulega og aukið gæði hans til muna.
Nánari upplýsingar um fyrirtækið eru veittar í síma 5500900 eða um netfangið info@eplica.is. Einnig er hægt að panta kynningu á vörum fyrirtækisins hér á vefnum.
Að öðrum kosti er hægt að kíkja víð:
Hugsmiðjan ehf. / Eplica ehf.
Skúlagötu 32-34
101 Reykjavík

