Fréttir

Húsdýragarðurinn semur um endurnýjun vefsvæðis síns

17.5.2004

Fjölskyldu- og Húsdýragarðurinn samdi nýlega við Hugsmiðjuna og CAOZ um endurnýjun á vef sínum

Verkefnið verður samstarf milli Hugsmiðjunnar og CAOZ þar sem CAOZ sér um útlitshönnun á vefnum en Hugsmiðjan sér um vefun í HTML/CSS uppsetningu vefsins og kennslu á vefumsjónarkerfi.

Vefurinn verður settur upp í Eplica vefumsjónarkerfinu.

Vefurinn verður á vefsvæðinu www.husdyragardur.is eftir opnun í sumar.

CAOZ

CAOZ er ein af áhugaverðari hönnunarstofum landsins. Fyrirtækið hefur frá stofnun einbeitt sér að stafrænni hönnun með góðum árangri. Auk þess að hanna áhugaverða vefi, hefur fyrirtækið hannað viðmót á hugbúnað. Einn stærsti sigur þess er tölvuteiknimyndin Litla lirfan ljóta sem hlotið hefur góðar viðtökur hvar sem hún hefur verið sýnd.

CAOZ
Ægisgötu 7
Sími: 511 3550
info@caoz.is

Um Hugsmiðjuna

Merki eplicaHugsmiðjan ehf. er fyrirtækið á bak við eplica. Það sérhæfir sig í hverskonar hugbúnaðargerð og hefur síðan í jánúar 2001 smíðað hugbúnaðarkerfi sem nú eru markaðssett undir eplica nafninu. Markmið fyrirtækisins er að veita viðskiptavinum sínum bestu fáanlegu lausnir, aðstoða þau við hagræða í rekstri, bæta upplýsingaflæði til viðskiptavina og starfsmanna og hækka þjónustustig án aukins tilkostnaðar.

Smíði vefumsjónarkerfisins eplica hófst árið 2001 en sala þess hófst fyrir alvöru ári síðar. Á þeim tíma sem liðinn er hefur fjöldi ánægðra notenda vaxið hratt og er ástæða til að þakka öllum þeim fjölmörgu fyrirtækjum sem hafa treyst okkur fyrir vefmálum sínum.

Vefumsjónarkerfið eplica er fyrst og fremst efnismiðlunarkerfi sem getur birt gögn frá ýmsum upplýsingaveitum og miðlað þeim áfram til notenda með mismunandi tæknilegar þarfi.

Auk vefumsjónarkerfis hefur fyrirtækið nú hafið sölu á eplica Application Builder sem sem nýtist við gerð á veflægum hugbúnaði og getur stytt þróunartíma verulega og aukið gæði hans til muna.

Nánari upplýsingar um fyrirtækið eru veittar í síma 5500900 eða um netfangið info@eplica.is. Einnig er hægt að panta kynningu á vörum fyrirtækisins hér á vefnum.

Að öðrum kosti er hægt að kíkja víð:

Hugsmiðjan ehf. / Eplica ehf.
Skúlagötu 32-34
101 Reykjavík

 








litli

Þitt álit

skiptir okkur máli

Ábending, hrós eða kvörtun? Láttu okkur vita, hvað þér finnst.
Athugið: ekki er nauðsynlegt að gefa upp nafn, síma né netfang.

Til að fyrirbyggja ruslpóst:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica